Menntamál - 01.12.1949, Blaðsíða 3
menntamál
XXII. 3.
NÓV.—DES.
1949
SigurSur GuSmundsson
skólameistari.
MINNINGARORÐ.
Enginn mun hafa talið það með ólíkindum, að dagur Sig-
urðar Guðmundssonar skólameistara mundi senn að kvöldi
kominn, er hann lét af embætti hart nær sjötugur að aldri.
Að vísu hafði hann átt yfir mikilli lífsorku að búa, en
hann hafði einnig neytt hennar óspart. En þó að andláts-
fregn hans hafi ekki þurft að koma mönnum á óvart og
hún flytji okkur ekki annað en eðlileg lífssannindi, eig-
um við vinir hans samt ekki fullauðvelt með að sætta
okkur við það, að hann sé horfinn okkur sjónum, okkur
finnst, að einhver djúpur og sterkur dráttur hafi máðst út
úr svip samtíðarinnar, að eitthvað sé orðið lágkúrulegra
kringum okkur en áður var, að heilbrigð og þróttmikil
rödd hafi þagnað, rödd, sem vakti okkur til íhugunar um
þann vanda, sem lífið færir okkur að höndum, og leitaðist
við að kenna okkur að greina kjarna frá hismi.
Sigurður Guðmundsson var fæddur á Æsustöðum í
Langadal í Iiúnavatnssýslu 3. sept. 1878. Foreldrar hans
voru Guðmundur Erlendsson bóndi þar og síðar hrepp-
stjóri í Mjóadal og kona hans Ingibjörg Erlendsdóttir.
Kann ég eigi að rekja ættir hans lengra né heldur hvað
hann hefur í arf tekið úr „ættanna kvnlegu blandi." Þó