Menntamál - 01.12.1949, Blaðsíða 30
152
MENNTAMÁL
b. með samvinnu við barnaverndarráð, barnaverndar-
nefndir, skóla, sóknarpresta og aðra aðila, er að slík-
um málum vinna,
c. með því að stuðla að því, að uppeldisheimili verði
stofnuð og starfrækt.
4. gr. — Verði barnaverndardeildir stofnaðar í öðrum
byggðarlögum, skal Reykjavíkurdeildin ganga í samband
við þær, enda séu lög og reglur þess sambands í samræmi
við yfirlýstan tilgang félagsins og samþyktar á fulltrúa-
fundi, þar sem fulltrúar frá væntanlegum deildum eigi
sæti.
Þessi ákvæði marka vítt og fjölbreytilegt starfssvið.
Margs konar erfiðleikar geta hamlað þroska barnsins, því
þarf verndin og önnur þau úrræði, sem að gagni skulu
koma, að vera fjölþætt. Viðfangsefni félagsins eru því
mörg, en það er enn þá ungt og lítils megandi. En ef margir
verða til þess að efla og styrkja þennan félagsskap, mætti
þó bráðlega ráðast í einhver aðkallandi viðfangsefni. Að
mínu áliti þarf fyrst og fremst að hrinda í framkvæmd
skipulagðri rannsókn á afbrigðilegum börnum, hvar sem
er á landinu. Þetta tel ég eitt mikilvægasta atriðið. Við
þurfum að geta gert okkur ljóst, hvernig ástandið er í
raun og veru. Samkvæmt þeim niðurstöðum verður síðan
að ákveða endanlega hagnýtar framkvæmdir.
Þó mega framkvæmdir til úrbóta ekki að öllu leyti bíða
þessarar niðurstöðu, heldur verða þær að hefjast nú þeg-
ar. Fjölmörg verkefni á þessu sviði eru svo auðsæ og brýn,
að engra rannsókna þarf til þess að ráðizt sé í að leysa
þau, enda þola þau enga bið. Þetta á t. d. við um fjöldann
allan af þeim börnum, sem þegar eru komin út á glapstigu.
Þeirra vegna þarf hið bráðasta að hefja raunhæfar að-
gerðir. Verði þau látin halda áfram í villu sinni, eru þau
sjálf í bráðri hættu, en draga auk þess fjölmörg önnur
börn með sér út í vandann. Þessa uppsprettu þarf að
stöðva, en það verður ekki gert á annan hátt en að lækna