Menntamál - 01.12.1949, Blaðsíða 40
162
MENNTAMÁL
skilyrði í Bern voru betri en í London, þar eð allir dvöldu
á einu hóteli. Fundarsalir voru þarna ágætir fyrir þá 80
fulltrúa frá 20 þjóðum. Sambandið er sem sé í góðum
vexti. Öllum myndarskap í aðbúnaði á hótelinu verður ekki
lýst í fáum orðum. Fundarsókn var ávallt góð á þessu þingi
og umræður miklar og fjörugar, gamansamar oft, en mjög
prúðmannlegar sem fyrr. Stærsta málið eða hið fyrir-
ferðarmesta var athugun þess, hvað kennarasambönd víðs-
vegar gera til þess að tryggja kennurum öryggi í stöðu,
launum og eftirlaunum. Fulltrúar frá hverju landi skýrðu
frá ýmsu úr heimahögum í viðbót við fjölritaðar skýrslur,
sem safnað hafði verið áður, og spurningum rigndi niður.
Dreifðist því margvíslegur fróðleikur og áhugaverður
meðal þingfulltrúa. Gátu fundir orðið nokkuð langdregnir,
en það bætti úr, hve menn töluðu yfirleitt skemmtilega.
Svissneskir túlkar — og þeir eru góðir — þýddu oft jafn-
óðum á frönsku.
Haldið verður áfram að ræða um starfsemi kennara-
sambandsins, meðal annarra mála, á þinginu næsta sumar.
Þegar það er afstaðið, hygg ég tímabært að draga saman
sumt hið fróðlegasta af því, sem fram hefur komið, og
birta lesendum Menntamála.
Alþjóða frið hefur borið mjög á góma á hverju þingi,
og mun verða haldið áfram að fjalla um það málefni. Um
það, hvort fást munu verulega skipuleg átök meðal skóla-
manna í þá átt hvarvetna eða sem allra víðast, verður ekki
ennþá sagt. En sú hugsjón vakir fyrir mörgum. Og ef allir
kennarar á jörðu beittu áhrifum sínum af fyllstu einlægni
til friðar og bróðurlegs skilnings, væri það eitt lóð á vog-
arskálina réttu megin.
Tilraunir til samvinnu eða samsteypu við önnur kenn-
arasambönd, sem fyrir eru og bera alþjóða nafn, standa nú
yfir. Of snemmt er að spá um árangur.
Á hverju ársþingi WOTP er kosinn nokkur hluti fimm
manna framkvæmdanefndar sambandsins, og er kjörtím-