Menntamál - 01.12.1949, Blaðsíða 72

Menntamál - 01.12.1949, Blaðsíða 72
194 MENNTAMÁL sjálf það, sem prenta átti, s. s. spjaldskráratriði og skóla- blöð, en þau eru líka mikið notuð í viðskiptum milli skóla. Allt þetta hygg ég geta verið til lífgunar og tilbreyting- ar í skólastarfinu, ef vel er á haldið. Hygg ég gott til sam- starfs við starfsbræður í öðrum löndum á vetri komanda. Þegar ég hugsa til ferðalags þessa, vaknar hjá mér sú ósk, að fleiri íslenzkir kennarar hefðu getað með mér notið. Um jólaleytið 1944 kom út Föndur I, sem Lúðvíg Guð- mundsson, skólastjóri Handíðaskólans tók saman. Heiti bókarinnar gaf til kynna að von væri á meira af slíku efni frá hendi höfundar, og hafa nú orðið efndir á því, en Föndur II kom út 1947. Er þar haldið áfram á sömu braut og var mörkuð með Föndri I. Fjölbreytt viðfangsefni valin með greini- legum útskýringum og myndum, sem gjöra börnum og unglingum auðvelt að leysa þau. En viðfangsefnin, sem bókin fjallar um, eru mjög mörg, og fjölbreytnin og fróð- leikurinn mikill og margþættur í efnisvali, litavali og vinnuaðferðum. Efni bókarinnar er þetta: Um liti, pappírs- vinnu, prjón, veggtjöld, spjaldvefnað, kambavef, bast- vinnu, fléttur og mottur, leðurvinnu, leirmótun og gips- steypu, heimagerða hefilbekki, tréskurð, kertastjaka, tré- skálar, útskorna kökubakka, málmvinnu, upphleypt landa- bréf og ýmislegt til minnis. Þetta yfirlit gefur nokkuð til kynna fjölbreytni viðfangsefnanna með liðlega 50 skýr- ingarmyndum, sem margar bera svipmót snillingsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.