Menntamál - 01.12.1949, Blaðsíða 20

Menntamál - 01.12.1949, Blaðsíða 20
142 MENNTAMÁL Hvað eiga börnin og unglingarnir að taka sér fyrir hend- ur, þegar svo er búið að þeim ? Oftlega leiðast þau út í götu- sollinn eða lenda í beinu slarki, verða reykingum og áfeng- isnautn að bráð. Þau leita niður á bryggjurnar og í ná- munda við þær, svo þroskavænlegt sem það umhverfi er, að ekki sé minnzt á þær freistingar, sem birgðaskemmur hafa að bjóða nú í vöruþurrðinni. Þá eru nýju bílarnir fagurgljáandi á bolinn, sem standa í röðum við göturnar og ginna og tæla strákana, sem lifa og hrærast í vélum. Að lokum má nefna þann vanda, sem okkur er á höndum vegna krakkanna, sem eru sífellt að leik á fjölförnum götum og í námunda við þær. Húsnæðisvandræðin urðu ekki sízt til þess að glæða skilning þeirra, sem skólamálunum stjórna, á nauðsyn þess að nota það húsnæði skólanna, sem laust er síðara hluta dags, í þágu barnanna í öðru skyni en til beinnar kennslu. Skólana skorti að vísu tilfinnanlega ýmis skilyrði og tæki til slíkra hluta, og við mörg skólahúsanna var verið að vinna að viðgerðum og endurbótum, en það var samt mik- ið gagn að þessu húsrými til tómstundastarfa barnanna. En mundu börnin færa sér þetta í nyt? Mundi það koma að nokkuru gagni að stofna til starfsemi í því skyni að temja þeim betri meðferð á frítíma sínum núna eftir styrjöldina? Veturinn 1946—1947 voru gerðar tilraunir í þessum tilgangi í smáum stíl þó við skólana á Bjölsen og Ruse- lökka í Ósló, og var þeim veittur 1800 kr. styrkur hvorum til þessara hluta. í Bjölsen-skóla var efnt til námsflokka- starfs í handavinnu, leikstarfsemi (sjónleikja) og teiknun- ar. Skólinn átti ekki aðeins á að skipa drengjahljómsveit (guttemusikkorps), heldur og telpnahljómsveit, sem lék á strokhljóðfæri, og fékk þessi hljómsveit styrk og aðstoð. Meðal yngstu barnanna var einnig komið á fót glamur- hljómsveit (skramleorkester). í Ruselökka-skóla, þar sem ég starfa, var komið á flokkum í blaki og handavinnu,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.