Menntamál - 01.12.1949, Blaðsíða 57
menntamál
179
kvæmdum. Staðsetningu og skipulag skólans þarf að vanda
sem frekast er kostur og vinna af fullkominni einurð og
festu að framgangi þess, sem ætla má heillavænlegast.
Það kann að þykja eðlileg spurning, hvort ástæða sé til
sérstakra samtaka á þeim grundvelli, sem Nemendasam-
band Kennaraskóla Islands er reist. Samtök eins og Sam-
band íslenzkra barnakennara kynnu að sýnast eðlilegur
vettvangur hinnar fyrirhuguðu starfsemi nemendasam-
bandsins. En á það er að líta, að innan þeirra vébanda eru
ekki nærri allir, sem numið hafa í Kennaraskólanum og
kynnu að vilja sýna honum ræktarsemi á þessum vettvangi.
Enn fremur munu þessi samtök beina orku sinni að tak-
markaðri viðfangsefnum og leitast við að dreifa kröft-
unum ekki um of. Loks má telja líklegt, að nemendasam-
bandið verði samkvæmt uppruna sínum og eðli einkum
borið uppi af ungum mönnum, sem enn eru óþreyttir og
fúsir til baráttu, en myndu siður hafa sig í frammi á öðr-
um vettvangi. Leystist þar þá úr læðingi orka, sem öðrum
skyldum samtökum mætti verða að hinn mesti styrkur.
Enda er það ósk og von nemendasambandsins, að góð og
náin samvinna megi takast með því og Sambandi íslenzkra
barnakennara og öðrum samtökum kennara.
Stjórn nemendasambandsins skipa:
Guðjón Jónsson, formaður, Steinar Þorfinnsson, varfor-
rnaður, Hrefna Þorsteinsdóttir, ritari, Guðnuindur
Magnússon, gjaldkeri og Óskar Halldórsson.