Menntamál - 01.12.1949, Blaðsíða 38
160
MENNTAMÁL
þingi, bæði á fundum og í kring um þá, og ekki síður við
ýmsar máltíðir, teboð o. s. frv. En þegar fulltrúar voru
hvattir til að láta í ljós álit sitt um þingið, kosti þess og
ágalla, og hvers þeir óskuðu viðvíkjandi næsta þingi, létu
nokkrir þess getið, að þó að þeim væri gamla London kær,
væri hentugra að velja næst kyrrlátari stað þar, sem menn
þyrftu ekki að dvelja dreifðir. Mér fannst mikið um hið
frjálsa, glaðlega og lýðræðislega andrúmsloft, sem ríkti
á þinginu, og tjáði þinginu og forráðamönnum þess þakkir
fyrir það á þessum fundi. Og satt að segja hafði ég reynt
ofurlítið þolrifin í þeim Því að þegar óskað var eftir meiri
þátttöku í umræðum á 2. fundi þingsins, sneri forseti máli
sínu til okkar nokkurra fulltrúa frá fjarlægum hornum
veraldar, sem talin eru, með ofurlítið ögrandi glettni. Hann
skal strax fá að heyra eitthvað um þetta og síðan fleira, áð-
ur en lýkur, hugsaði ég. Og í umræðunum um alþjóðatungu-
mál fékk ég tækifæri til að prófa, hve stillt væri sveigjan
í Engilsöxum, þó að ég væri slíku ekki með öllu ókunnugur.
Nokkrir menn utan enskumælandi landa höfðu eðlilega
tjáð sig fylgjandi því, að sambandið notaði aðeins ensku
fyrst um sinn að minnsta kosti, þar eð ekkert annað mál
gæti komið sambandinu nándar nærri að slíku liði. Tók
ég í þann strenginn. Hins vegar taldi ég, að hvorki Eng-
lendingar né Ameríkumenn ættu það fyllilega skilið, því
að þeir notuðu mál sitt í ýmsu gálauslega á alþjóða vett-
vangi. Þeir ættu ennþá eftir að læra að tala og rita alþjóða
ensku (ekki þó basic English), hrúguðu saman ýmiss konar
orðum og orðasamböndum, sem lægi ákaflega önugt fyrir
útlendingum. Nefndi ég áþreifanleg dæmi um þetta, bæði
úr bókum um viðskiptamál, kennslu- og uppeldismál, —
bókum, sem ætlað væri að fara um alla jörð, einnig milli-
ríkjasamninga o. fl. Kvað ég enskumælandi þjóðir þurfa
að stúdera sitt mál í þessu skyni, hvernig þyrfti að tala og
skrifa fyrir útlendinga víðs vegar á jörðinni, enda væri
slíkt engin furða, þar eð Bretar og Ameríkumenn flæktust