Menntamál - 01.12.1949, Page 8

Menntamál - 01.12.1949, Page 8
130 MENNTAMÁL virzt það ærið óraunhæfur hugarburður um þær mundir. Hans biðu þó verkefni, sem nær lá að leysa. Á þessum tíma var hinn mikli timburskáli, skólahúsið, kyntur með kola- ofnum og lýstur með olíulömpum. Var honum næsta ljóst, í hve glæfralegum umbúðum fjöldi ungmenna var þar geymdur, enda hafði hurð stundum skollið nærri hælum. Sigurður linnti ekki látum, fyrr en miðstöðvarhitun og raflýsing hafði verið sett í skólahúsið. Hafa kunnugir sagt mér, að fé til þeirra aðgerða hafi eigi legið laust fyrir. En valdamönnum lands var víst aldrei auðveld undankom- an, þegar sá mikli málafylgjumaður, Sigurður Guðmunds- son, knúði á dyr þeirra í nauðsynjaerindum skóla síns. Hefði verið nógu gaman að eiga ritaða frásögn af þeim viðskiptum, enda hafði Sigurður oft við orð að færa hana í letur. Annað stórræðið, sem Sigurður réðst í, skömmu eftir að hann fluttist norður, var að hefja menntaskólakennslu fyrir gagnfræðinga. Luku fyrstu nemendur, sem notið höfðu fullrar kennslu til stúdentsprófs á Akureyri, því prófi vorið 1927. En þeir urðu að sigla til Reykjavíkur til þess að ganga undir próf. Haustið eftir gerðust þau tíðindi, að skólinn öðlaðist réttindi til að brautskrá stúdenta. Er mér minnistæður fögnuðurinn, sem fór um bekki, þegar sá boðskapur var fluttur úr öndvegi skólans. Aðra áfanga, sem Sigurður náði í baráttu sinni fyrir vexti og viðgangi skólans, má helzta telja stofnun stærð- fræðideildar og smíði nýs og mikils heimavistarhúss, sem er að vísu ekki lokið enn. Kennslustundir Sigurðar Guðmundssonar eru meðal ánægjulegustu stunda, sem mér hefur auðnazt að lifa. Mér hefur því oft orðið að renna huganum til þeirra og spyrja mig, í hverju ágæti þeirra hafi verið fólgið. Svörin verða helzt á þá leið, að höfuðforsendan hafi verið atgervi kenn- arans, fjör og fjölbreytni anda hans og auðlegð tilfinninga-

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.