Menntamál - 01.12.1949, Síða 9

Menntamál - 01.12.1949, Síða 9
MENNTAMÁL 131 lífsins ásamt vilja hans og löngun til að leysa hlutverk sitt af hendi af nokkurri list. Kennsla Sigurðar var ekki bundin neinu kerfi, engum fyrir fram gerðum áætlunum, ekki föstum kennsluaðferð- um. Það gat enginn sagt sér það fyrir fram, hvað hver kennslustund mundi bera í skauti sínu. Hið eina, sem við vissum, var það, að kennarinn mundi koma kátur og hress, iðandi af fjöri og fyndni, leikandi á als oddi. Við vissum líka orðið af reynslunni, að af því efni, sem tekið var til umræðu, mundu spretta fram ótölulegar spurningar, að forvitnin yrði æst upp í okkur. Viðfangsefninu var velt fyrir okkur á allar lundir og reynt að knýja okkur til að festa sjónir á því. Af þessu leiddi nýjar uppgötvanir og viðhorf, sem höfðu aldrei nálgazt vitund okkar áður, og stundum jafnframt mótmæli og innri andspyrnu, ef fyrri hugmyndir röskuðust um of. I stuttu máli sagt: kennslu- stundin hafði kveikt neista í okkur, við gengum annars hugar af þeim fundi, hugleiðandi sannindi, sem höfðu birzt okkur fyrsta sinn. Stundum ískraði hláturinn og kátínan í okkur langt fram eftir degi. Hvert tilefni, sem gafst, hafði verið notað til þess að gera sér til gamans. Og enn getum við hlegið upp úr eins manns hljóði, þegar þessum kátlegu minningum skýtur upp. Ég sagði, að kennsla Sigurðar hafi ekki farið fram eftir föstum áætlunum. Þetta er að vísu ekki nema hálfur sannleikur. Hún var gagnhugsuð og þrautundirbúin, en sá, sem náð hefur tökum á einhverri list, leikur hana af fullu frjálsræði, hann er ekki þræll þeirra reglna, sem nem- andinn í listinni verður að beygja sig undir. Áður var minnzt á einn þátt í skólastjórn Sigurðar, dugnað hans að koma fram málum skólans við stjórnar- völdin. í þær greipar hafa þó ekki allar menntastofnanir landsins sótt gull. Eftir er að drepa á hina innri stjórn hans á skólanum. Eaunar var ég ekki gagnkunnugur henni í öllum greinum, þar sem ég var aldrei í þeirri sveit

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.