Menntamál - 01.12.1949, Síða 14
136
MENNTAMÁL
umhverfi sitt. Og þegar veikindi eða annan vanda bar að
höndum í heimavistinni, duldist engum, að skólinn átti
umhyggjusama og örugga húsmóður.
Þau frú Halldóra og Sigurður voru gefin saman í hjóna-
band 28. apríl 1915. Þeim varð fimm barna auðið, sem
á legg komust. Má af líkum ráða, hvílíkir foreldrar þau
hafi verið, er þau auðsýndu vandalausum jafnmikla ástúð.
Öll hafa börn þeirra hlotið góða menntun, öll lokið stúd-
entsprófi. Elztur þeirra er Ólafur læknir, næst Þórunn gift
í Englandi, þá Örlygur listmálari, Guðmundur lögfræð-
ingur og Steingrímur, sem stundað hefur málanám.
Sigurður lét af embætti um áramótin 1947—1948 og
fluttist til Reykjavíkur á næsta vori. Var honum einkum
hin síðari ár auðsýnd margs konar sæmd og viðurkenning,
svo að hann mátti glöggt finna, að hið gagnmerka og þjóð-
holla starf hans var að einhverju metið. Sumarið 1947
voru þau hjón heiðursgestir á landsmóti stúdenta. Akur-
eyrarbær, kennarár og nemendur Menntaskólans þar héldu
þeim samsæti og færðu þeim gjafir, áður en þau hurfu
brott úr bænum. Og nemendur skólans frá ýmsum tímum
tóku sig saman um að annast útgáfu á ritum hans. Áður
höfðu komið út Heiðnar hugvekjur, gefnar út af Tónlistar-
félagi Akureyrar, en á síðast liðnum vetri kom út Á sal
fyrir forgöngu nemenda hans.
Sigurður lézt að heimili sínu í Reykjavík aðfaranótt 10.
nóv. s. 1. Banamein hans er talið hjartabilun. Hann fékk
hægt andlát. ^
Hér hefur æviferill Sigurðar Guðmundssonar verið stutt-
lega rakinn og tilraun gerð að lýsa störfum hans. Heildar-
mynd af manninum sjálfum væri torveldara viðfangsefni.
Lífsnautn hans og hugarraunir, efasemdir hans og sann-
færing, samúð hans og andúð, hrifning hans og hneykslun
eða með öðrum orðum öldurót sálarlífsins var meira
háttar með honum en flestum mönnum öðrum. Er ég hug-