Menntamál - 01.12.1949, Page 19

Menntamál - 01.12.1949, Page 19
MENNTAMÁL 141 því að koma á fót lestrarstofum í Ósló og öðrum bæjum. Þessum lesstofum barnaskólanna var séð fyrir hentugu bókasafni, góðu húsnæði og aðbúnaði. Börnin gátu komið þangað tvö kvöld í viku. Þar lásu þau oft eða unnu það, sem þeim var sett fyrir að gera heima, eða gerðu eitthvað annað sér til dundurs. Sum kvöldin komu 150 börn í einn skóla. Einstakir kennarar komu af stað ýmiss konar félags- starfsemi í sambandi við lesstofurnar, stofnuðu félög frí- merkjasafnara, taflfélög o. fl. Dæmi voru til, að börnum, sem hug höfðu á efnafræðitilraunum, var smalað saman í frjáls samtök í því skyni að stunda slíkar tilraunir, og gaf það góða raun. í mörgum skólum voru stofnaðir leikflokk- ar — ekki sízt í Sagene-skóla. I sama skóla var unglingum safnað saman til handavinnu á kvöldin. Og yfirleitt má segja, að um allt landið hafi mikið verið gert í þessum efn- um. Allt var þetta í örum vexti, en þá skall stríðið á. — Ég skal varast að hefja á nýjan leik Jerímíasargrát yfir hermdarverkum Þjóðverja og nazista í norskum skólum. Ég verð aðeins að nefna eina af afleiðingum stríðsins, hús- næðisskortinn, sem gætir einnig mikið á landsbyggðinni í Noregi. Þetta neyðarástand kemur ekki aðeins niður á fátækasta fólkinu, þótt það verði harðast úti. Fólki er fyrirskipað að lögum að láta af hendi herbergi í íbúðum sínum, og sumir taka af frjálsum vilja við ættingjum og vinum, oft heilum fjölskyldum, á heimili sín. Þetta hefur í för með sér ýmiss konar vandkvæði jafnvel í góðum húsakynnum. Það er því óhætt að fullyrða, að húsnæðis- skorturinn mæði hart á öllum þjóðfélagsstéttum. Mest bitn- ar hann þó á börnum og unglingum, sem hafa hvergi frið með heimavinnu sína eða leita meira út en áður vegna ósamkomulags fullorðna fólksins. Verst er bó, að lítil von er til þess, að úr þessum vandræðum rætist á næstunni. Eðli- legar vinnu- og tómstundir barnanna fara að meira eða minna leyti forgörðum vegna þessa ófremdarástands.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.