Menntamál - 01.12.1949, Page 22
144
MENNTAMÁL
inu áður og höfðu nú innritazt í aðra skóla, gagnfræða-
skóla og framhaldsskóla í Ósló — eftir allri siðvenju er það
stórum hærra metorðastig en nám í barnaskóla. — Þess-
ir unglingar beiddust þess heitt og innilega að mega halda
áfram í handavinnuflokkunum á Ruselökka frá vetrinum
áður. Ég verð að játa það nú, að þessi vitnisburður um
lifandi áhuga af hálfu nemendanna, gladdi mig meira en
ég vildi kannast við. Þetta var gild sönnun þess, að við
vorum á réttri leið. Að sjálfsögðu var tekið við þessum
nemendum.
Þessar fáu tilraunir áttu svo mikilli hylli að fagna, að
fræðsluráð Óslóar lagði til, að veittar yrðu 100 þús. kr.
síðast liðið skólaár til sams konar starfsemi í öllum skólum
borgarinnar. Því miður skar bæjarstjórnin þessa upphæð
niður í 40 þús., svo að lítið kom í hlut hvers skóla.
Þó var hafizt handa síðast liðið haust í öllum skólum Ós-
lóar. Meðal annars var öllum lesstofum haldið opnum fimm
daga vikunnar fyrir nemendur, sem þörfnuðust griðar-
staðar við heimavinnu sína. Ég skal ekki þreyta menn á að
rekja öll smáatriði þessarar starfsemi. 1 Kaupmannahöfn,
Gautaborg og Stokkhólmi hafa menn komizt langt á þess-
ari braut, og hún hefur hlotið ríflegan fjárstyrk frá yfir-
stjórn fræðslumálanna. Ákjósanlegt væri, að nemendurnir
bæru sjálfir ábyrgðina á þessari starfsemi, tækju við
stjórninni á flokkunum og semdu áætlanir um aukningu
hennar, en umsjónarmaðurinn — kennarinn, leiðbeinand-
inn — drægi sig sem mest í hlé og léti þá aðeins til sín
taka, þegar þess væri bein nauðsyn. í ýmsum greinum
hefur það tekizt að koma á slíkri stjórn nemendanna, en
í öðrum virðist þurfa að hafa svipað snið og á náms-
skeiðum.
Frá þessu starfi síðast liðið skólaár ætla ég aðeins að
nefna einstök dæmi. Leirkerasmíðin var svo eftirsótt, að
engin tök ætluðu að reynast á því að verða við umsókn-
unum. Meginhluti þess fjár, sem var til ráðstöfunar, fór