Menntamál - 01.12.1949, Síða 28

Menntamál - 01.12.1949, Síða 28
150 MENNTAMÁL Enda þótt foreldrar séu allir af vilja gerðir, eru kjör sumra afbrigðilegra barna svo og heilbrigðra systkina þeirra hin ömurlegustu. Enginn veit, hve mörg þessara barna eru námshæf á einhverju sviði. Hæfileikum þeirra er ekki sinnt. Þau vaxa upp til andlegs vesaldóms, í algeru þekkingar- og kunnáttuleysi. Litlu meiri er þekking okkar á afbrigðilegum börnum, skólahæfum. Frá sjónarmiði skólans lítum við fyrst og fremst á hina rýru námsgetu þeirra, finnum þau óhæf til þess að fylgjast með í venjulegu námi, en gerum okkur litla grein fyrir þeim ástæðum, sem valda þessari vöntun hjá hverju einstöku barni. Slík börn eru í hverjum skóla, og kennarar finna vel erfiðleikana, sem á því eru, að þau stundi svipað nám og heilbrigð börn. Áður tók skólinn og raunar allur almenningur einungis neikvæða afstöðu til slíkra barna. Sjónarmiðið var einhæft og þröngt: Náms- geta, námsafrek. Sá, sem ekki stóðst fyrir því, hann var auli, bjáni. Hann fór í úrkastið. Nokkuð eimir enn eftir af þessu mati, en smám saman þokar það þó fyrir vaxandi skilningi á fjölbreytni afbrigðilegra barna í skólum. Þessi hópur er ekki fámennur. Samkvæmt athugun, sem gerð hefur verið í barnaskólum Reykjavíkur, hafa 5—6% barnanna svo takmarkaða námsgetu, að þeim er venjulegt skólanám ofvaxið, svo fremi hinum algengu kennsluaðferð- um er beitt einvörðungu. Við megum því gera ráð fyrir nálægt 300 barna hópi, sem sækir skylduskóla höfuðstaðar- ins, en getur ekki fylgzt með í venjulegu námi. Líka þennan hóp mynda margvísleg og innbyrðis ólík börn, og fer því mjög fjarri, að hið sama eigi við um þau öll. Nánari rannsókn myndi leiða í ljós, að takmörkun námsgetunnar orsakast af ýmsum líkamlegum eða sál- rænum göllum, sem barnið sjálft ræður ekki við. Oft stafar námstregða af áfalli, sem barnið hefur orðið fyrir, t. d. í fæðingu, vegna sjúkdóms eða af slysförum. Oft kemur veila barnsins fram sem taugaveiklun, slen, vanmáttar-

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.