Menntamál - 01.12.1949, Page 39

Menntamál - 01.12.1949, Page 39
menntamál 161 í einstökum orðum, sem ekki væru notuð í sömu merkingu beggja megin hafsins og skildu ekki alltaf hvorir aðra, sem ljóst væri af viðræðum á þessum fundum. Ýmis- legt fleira bar á góma í þessu sambandi, sem ekki eru tök á að rekja hér, að sjálfsögðu í gamansömum tón. Við not- uðum yfirleitt aldrei súrt edik á ræðuborði okkar. Þessum orðum mínum var tekið með vinsemd og athugun og spunn- ust meiri umræður. Töldu sumir mjög gott að fá að horfa á sjálfa sig eins og aðrir sæju þá. Dr. Carr, ritari sam- bandsins, mæltist til þess snemma á þinginu, að ég skrif- aði grein um þingið í amerískt tímarit, sem hann hafði umboð fyrir. — Ég færðist undan, fannst of vandasamt að skrifa um samkomu, sem bar svo stórkostlegt nafn. Hann kvaðst hafa gaman af, að einhver fulltrúi frá smærri þjóðum segði það, sem honum dytti í hug um slíkt þing. Síðar sá ég eftir að hafa hafnað þessu. Því að þess verður oft vart, að stærri þjóðir vilji gjarna heyra raddir frá smærri félögum sínum, sem ekki hafa tekið þátt í stór- pólitískum átökum. Menn kunna nú að spyrja, hver beinn árangur hafi orðið af málaundirbúningi og málameðferð yfirleitt á þinginu. Allmiklum fróðleik hafði verið þarna safnað saman og eru þegar nokkur verðmæti í honum. Við umræðurnar kom í ljós, að málin lágu misjafnlega vel fyrir átökum sambandsins eins og sakir standa. Og vart verður gengið fram hjá því, að þingið bar í sér nokkurn tilraunablæ þess eðlis, að leitað væri að, hverjum málum væri tiltækilegast að starfa að fyrst um sinn. Þess hafði verið vænzt, að sam- bandið næði þegar í stað samvinnu við UNESCO, sem þá var raunar í mótun, um sum þessara áðurnefndu mála. Þetta hefur því miður ekki tekizt nema að litlu leyti ennþá. Liggja því þessi dagskrármál flest enn í frekari athugun. Á ársþingi WOTP í Bern s. 1. júlí var ég einnig fulltrúi frá Islandi með kjöri frá stjórn SÍB og sem áheyrnar- fulltrúi frá Landssambandi framhaldsskólakennara. Þing-

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.