Menntamál - 01.12.1949, Side 45

Menntamál - 01.12.1949, Side 45
MENNTAMÁL 167 í heimi, sem allur logar í ófriði með öllum hans ógnum, eins og raun ber vitni um í dag, er ekki ólíklegt að nokkuð hafi slegið á þessa oftrú á ágæti mannsins og óskeikult mat skynsemi hans, og vel getur verið, að meðal þeirra, sem horfa opnum augum á grimmd og spillingu samtíðarinnar, hafi þeim fjölgað, sem mundu hika við að fullyrða, að djöf- ullinn sé dottinn úr sögunni, eins og komizt er að orði 1 þessari gömlu bók. Ég er eigi að síður þeirrar skoðunar, að á okkar landi hafi engin straumhvörf orðið ennþá í þessu efni. Ég vil því til sönnunar taka upp eftirfarandi ályktun, sem sam- þykkt var á fundi norðlenzkra presta og kennara á þessu hausti: „Fundurinn telur þá stefnu heillavænlegasta í guð- fræði, sem öðru, að ganga ávallt og óttalaust því á hönd „sem sannara reynist“ samkvæmt rannsókn, rökum og beztu þekkingu hvers tíma“. Þessi ályktun var birt athugasemdalaust í Kirkjublað- inu, og virðist mér það benda til þess, að hún sé ekki talin eiga upptök sín hjá þeim „stórkostlega minnihluta" sem fylgir íhaldssamari guðfræðistefnu. Þetta þýðir það. að það er ekki samvizka mannsins upplýst af Guðs orði, sem á að móta afstöðuna til guðfræðinnar, heldur skynsemi mannsins og „þekking hvers tíma“. Þeir, sem harðast börð- ust gegn kverkennslunni í upphafi þessarar aldar, gerðu það sannarlega ekki til þess að útrýma kristindóminum, heldur þvert á móti til að efla hann með því að gera hann aðgengilegri en þeir gættu þess ekki, að þetta er ekki hægt. Hinn kunni sænski prófessor Hugo Odeberg hefur sagt: „Margir vinir kristindómsins hafa borið fram óskina um að nema burt það, sem verður til ásteytingar. Þeim er ljós sá kraftur, sem kristindómurinn hefur haft og ennþá býr yfir. Þeir sjá þennan sérkennilega og óskiljanlega kraft, sem í kristnu trúnni býr til þess að umskapa menn, til að ala

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.