Menntamál - 01.12.1949, Side 49

Menntamál - 01.12.1949, Side 49
MENNTAMÁL 171 breytt í það horf, að meira verði miðað að trúarlegri upp- byggingu nemendanna en verið hefur. í þessu efni þarf kennaraskólinn að vera brautryðjandi. Kristindómskennslan þar þarf fyrst og fremst að miða að því að vekja og efla trúna og að veita nemendunum sem gleggstan skilning á því hvað er rétt kenning og hvað röng að dómi Biblíunnar. Æfingakennslan þarf að veita kenn- araefnunum meiri aðgang að erlendum kennslubókum, tækjum og aðferðum til þess að glæða áhuga þeirra og víð- sýni og sömuleiðis þyrfti að útvega góðar handbækur og önnur hjálpargögn. Kristileg uppeldis- og sálarfræði þyrfti einnig að fá meira rúm í kennslunni en verið hefur. Kennslubækur þær, sem notaðar eru í barnaskólunum, þyrfti nauðsynlega að endurbæta, bæði að því er snertir efnisval og niðurröðun efnis. Sögulegt samhengi rofnar í seinni hluta fyrsta heftis, og frásagnir eins og köllun Jesaja hverfur í efni, sem börnunum er algjörlega ofviða, og ýmsar af þeim frásögnum, sem voru í Biblíusögum Sig- urðar Jónssonar, eða aðrar við barna hæfi hefðu frekar átt að vera í þessu hefti, en kaflar þeir, sem þar eru teknir upp úr ritum gamla testamentisins. Skiftingin milli ann- ars og þriðja heftis virðist algert handahóf. Eðlilegast hefði verið að annað heftið hefði náð að hvítasunnu, og að síðan hefði tekið við kirkjusöguágrip við barna hæfi. Um kafla þá, sem teknir eru upp úr ritum N. T., gildir sama og um kaflana úr G. T., að ég tel vafasaman ávinn- mg að þeim. Það vantar tilfinnanlega kver í þessar kennslubækur barnaskólanna, og hefði verið ákjósanlegast, að börnin eignuðust með því N. T. eða Biblíu, sem þau lærðu að nota með leiðbeiningum kennarans. Önnur kennslugögn s. s. vinnubækur, kort og myndir væri að sjálfsögðu æskilegt að fá sem fyrst. En eins þýðingarmikið og það er að hafa góðar kennslubækur og önnur þau gögn, sem til kennsl- unnar þarf, þá varðar þó æfinlega mestu, hvernig maður-

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.