Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1920, Page 56

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1920, Page 56
[ IÐUNN Svikamylla dýrtíðarinnar. Eftir Svipal. Öll stynjum við undan neyðaroki dýrtíðarinnar og allir bölva henni, nema ef vera skyldu einstaka fram- leiðendur og kaupsýslumenn, sem hafa rakað saman auð fjár á henni. Þeir kunna að hugsa líkt og bónd- inn, sem varð á að segja, þegar smjörið komst i sem hæst verð í stríðinu: »Það vildi eg, að guð gæfi, að þetta blessað stríð héldist sem lengsl!« — Hann athugaði ekki, karl-llónið, hversu ósk þessi var fá- ’vísleg og syndsamleg, þar sem striðið kostaði rnillj- ónir mannslífa og örbirgð og eymd tuga og jafnvel hundraða milljóna. Nú er stríðinu lokið, en dýrtíðin helst og fer-meira að segja sívaxandi. Skyldi nokkur maður vera svo fávís að óska þess, að því lialdi áfram. Ef svo er, þá ættu menn eilt skifti fyrir öll að reyna að virða fyrir sér orsakir, eðli og afleiðingar dýrtíðarinnar. Munu þeir þá sjá, um það bil sem þeirri hugleiðing lýkur, að það er að minsta kosti tvísýnn gróði, sem dýrtíðin lieíir í för með sér. Vilji menn þá fyrst svipast eftir upptökum dýrtíð- arinnar, þá eru þau nokkurn veginn auðsæ. Fyrsta orsök hennar var auðvitað sú, að vinnandi fólki í heiminum fækkaði og að framleiðslan þar af leiðandi minkaði, undir eins og þessi djöfladans, heimsstyr- jöldin, hófst. En undirrót stríðsins var þjóðametnað- ur, ágirnd og valdafíkn. Nú þegar framleiðslan minlc- aði og vinnukraftur þvarr, jókst auðvitað eftirspurn-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.