Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1931, Side 49
IÐUNN
Gróðinn af nýlendunum.
14T
það, hvernig Bretar — og fleiri þjóðir — hafa farið að
því að sjúga út af nýlendunum fjárfúlgur í miljarðatnli
— fjárfúlgur, sem voru fluttar heim — og samtímis
eignast geysilega mikið af föstum verðmætum í ,þessum
sömu nýlendum. Þessu úrlausnarefni hafa nýlendubók-
mentirnar gengið fram hjá. Og það er raunar engin
ástæða til, þegar nánar er að gáð, að undrast yfir þessu
tómrúmi í hinni venjulegu sagnaritun.
Stórveldi Evrópu hafa lagt grundvöllinn að nýlendu-
auð sínum með hernaðar-ráðstöfunum, ránum og klækj-
úm. Með svipuðum aðferðum hafa þau svo ávaxtað og
aukið þessar eignir, og árum saman flutt heim geysileg-
ar fúlgur með stöðugt nýjum þvingunar-ráðstöfunum.
Mestur hluti þeirra aðgerða, sem skapað hafa þenna
auð, er myrkri hulinn. Þeir, sem hafa sölsað undir sig
miklar eignir með ofbeldi eða svikum, kæra sig vitan-
lega ekki um að hrópa um klækjabrögð sín í áheyrn
heimsins. Það væri til of mikils ætlast af evrópiskri
sagnaritun nú á dögum, að hún færi að leggja nýlendu-
þjóðunum upp í hendumar áróðursgögnin í baráttu
Þeirra gegn yfirráðum Evrópu.
Elzta og einfaldasta afla-aðferðin var rétt og slétt
írán í einni eða annari mynd. Brezkur kaupsýslumaður-
skrifar þannig á 18. öld: „Vöruflutningarnir frá Ind-
landi eiga sér stað án þess, að við sendum héðan einn
einasta eyri silfurs." I opinberri skýrslu einni um verzl-
unarfélagið brezka laust fyrir 1800 er þessa upplýsingu
að finna: „Ekkert af afurðum landsins (þ. e. Indlands)
þeim, er félagið annast útflutning á, er látið í vöru-
skiftum, heldur tekið án nokkurs endurgjalds eða
gneiðslu.“
Gmndvöllur auðs þess, sem Evrópa á í flestum ný-
'endum sínum, er lagður með valdboðnum skattgreiðsl-