Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1931, Blaðsíða 96
194
Bækur.
IÐUNM'
spilla vinsældum bókarinnar eða ástsæld höíundarins í aug-
um þeirra, sem beztan hafa tímann til að lesa og mest
peningaráðin til að kaupa bækur. Rætur þeirrar hreyfingar
eru skýrðar á sama hátt og Morgunblaðið og önnur borg-
araleg blöð hafa verið að skýra þær fyrir íslenzkum les-
endum, og allir heiðarlegir borgarar um heim allan vita,
að það er hin eina og sanna skýring á þeim rnálum. Hún
er ekki sprottin af neinni félagslegri nauðsyn, sem myndast
hefir fyrir þróun og byltingu atvinnuhátta. Það er nú eitt-
hvað annað. Hún er uppfynding einnar afvegaleiddrar sálar,
sem þarf að hefna sín á hinum athafnaríka og dáðrakka
héraðshöfðingja, sem með framtaki sínu hefir drifið upp
stórbæ, þar sem áður var ómerkilegt fiskiver. Auðvitað
tekst þessum manni að æsa upp lýðinn gegn velgerðanranni
sínum, því að sálir mannanna eru móttækilegar fyrir spill-
ingu heimsins. Hið háa verkanrannakaup og hin ógurlega
kreppa eru að setja auðmanninn og framkvæmdamanninn
Gissur á höfuðið, rödd samvizkunnar er tekin að vakna í
brjósti Ragnari fyrir undurfögur orð hinnar guðhræddu og
alls staðar líknandi prestskonu, sem er gömul kærasta
Ragnars og auk þess systir hans — en það veit enginn þá,
nema guð, Ragnar og frú Salvör Samúelsen, móðir hans.
Sigrnar Ragnarsson hefir tekið þátt í verkamannahreyfing-
unni með föður sínum, en sér eins og hann um síðir, að
öll þeirra starfsemi leiðir til eyðileggingar, ekki fyrst og
fremst fyrir hinn mikla mann, sem alt snerist í gegn, held-
ur fyrir verkalýðinn, sem verið var að æsa upp, og svo er
það líka til stórbölvunar fyrir hann sjálfan, af því aö
hann elskar dóttur atvinnurekandans. Og svo verður þetta
alt svo spennandi og stórfenglegt. Þegar foringjarnir eru
að iðrast og bæta ráð sitt, þá koma stúdentar frá Reykja-
vík. Þeir hafa verið í Moskva, eru blóðrauðir konnnúnistar
og æsa alt upp. Lýðurinn tryllist. 1 þúsundum streynia
menn til Gissurar hins ríka með blysum og ólátum. Sigmar
ætlar að stöðva hópinn, en honum er misþyrmt og hann er
bundinn, prestsfrúin ætlar að stilla til friðar, en hún er
steindrepin, og sá, sem drepur hana, drepur svo sjálfan sig.
En svo endar alt saman ljómandi vel. Gamli verkstjórinn
rekur verkamennina til vinnu sinnar. Gissur fær skeyti um
Æengið lán í Englandi, og þar með er honum borgið. Gamla