Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1931, Side 77

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1931, Side 77
jðunn Bylurinn. 175 áfram án þess að vita í þennan heim eða annan. Fæt- urnir eru komnir af stað og hreyfast ósjálfrátt — en -alt af verður styttra á milli sporanna og minni máttur i hreyfingunum, eftir því sem lengra líður. Það er að finna, sem bráðum verði fæturnir orðnir það stirðnaðir, að þeir geti ekki þokast úr stað. En alt í einu skerst snærið kveljandi fast inn í úln- iiðina á þeim Skjöllögrinn og Dröbakken. Báðir ktrit- ast þeir við og reyna að mjaka sér áfram. En þeir gjeta ekki þokað Sjugur Rambern. Hann stendur graf- kyr og pjakkar í sífellu skíðastafnum í eitthvað. En Það vita þeir ekki — því að þeir hvorki heyra né sjá. Og Rambern heyrir ekki heldur eða sér. En hann skynj- samt. Þegar hann pjakkar niður broddinum, berast áhrif frá því, sem hann pjakkar í, upp eftir stönginni, uPp handleggina á honum og áfram eftir líkamanum °g inn í hugskot hans. Þetta, sem hann er að pjakka í, er ekki klaki. Ram- hern finst það líkast frosinni jörð, viði eða grjóti. — Kofinn! Hugsuninni skaut örhratt upp hjá honum. Hann þreifaði fyrir sér. . . . Þetta var víst mænir, sem stóð þarna upp úr snjónum. Hinir þukla og þreifa til að finna Rambern. Þeir vilja komast að raun um, hvað um er að vera fyrir áonum. Og mænirinn verður einnig fyrir þeim. Og úndir eins dettur þeim báðum það sama í bug: Kofinn, Þlviljun, hundaheppni. Þeim er borgið. Þeir skríða fram með kofanum og steypast ofan í htla snjógróf. Þeir finna hurðina. Snjórinn nær bara UPP á hana miðja. Og þar eð dyrnar opnast inn, er h®gðarleikur að opna og fá sér húsaskjól. Það er hlýtt inni — næstum því eins og í upphituðu herbergi, saman borið við það, sem úti er. Það er

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.