Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1931, Side 94
192
Bækur.
OUNttf
hverri nýrri liók kemur greinilegar í ljós skyldleikinn milli
hans og höfunda fornritanna. Bókin um Jón Arason er helj-
armikið rit, hátt á fimta hundrað bls. En ]rað er fjarri pví,
að í henni finnist mærð eða margorðar lýsingar á mönnum
eða atburðum. Þvert á móti finst lesandanum oft og einatt
alt of fljótt yfir sögu farið, alt of skamt dvalið við þetta
eða hitt. Fjöldi inanna kemur {jarna við sögu — eins og á
sér stað í mörgum fornsagnanna. Þeir koma og hverfa;
]ieir hafa hver sín sérkenni, sem bregður fyrir eins og
leiftrum, en ]ió með þeim hætti, að oss grunar að þeir búi
yfir hver sinni sögu, sem oss fýsir að kynnast nánar.
Þetta á t. d. við um börn Jóns Arasonar og aðra venzla-
menn — og ekki hvað sízt gildir það um andstæðinga
hans; marga þeirra vildum við gjarna fá að sjá betur en
höf. gefur kost á. Sumir kynnu að vilja telja þetta ljóð á
bókinni. En spurningin er, hvort bók getur fengið betri
meðmæli en þau, að lesandinn leggi hana frá sér með
söknuði í huga yfir ]iví að hafa ekki fengið að vita meira
um þær persónur, er hún segir frá.
Sögunni mætti skifta i tvo hluta, og er skifting sú ekki
óréttmæt, að því er snertir vinnubrögð höf. og meðferð á
efni. Fyrri hlutinn segir frá æsku Jóns Arasonar og fyrstu
manndómsárum, þangað til hann verður biskup á Hólum. 1
þcssum hlutanum nýtur sköpunargáfa liöf. sín bezt. Lýsing-
in á drengnum og unglingnum Jóni Arasyni er full af lífi
og tindrandi frískleik. Hann kemur á móti okkur ljóslifandi,
tápmikill og djarfur, rikur að atgervi og með óbilandi trú
á lííiö, vinur allrar veru, fæddur til að sigra. — 1 seinni
hlutanum, eftir að Jón Arason er seztur á biskupsstólinn,
er hann ekki eins nátengdur höf. og hann var áður. Úr Þv'
snýst frásögnin meira um ytri atburði — valda-umstang og
baráttu fyrir opnu tjaldi á leiksviði sögunnar. Höf. er ekki
eins frjáls og áður, hinir sögulegu stór-atburðir binda hann
að nokkru leyti. Hitt segir sig sjálft, að sá hluti sögunnar
er engu síður spanandi. En víða finst manni alt of fIjótt
farið yfir — ekki sízt í sögulokin.
Bók um Jón Arason! Er ekki búið að skrifa svo mikið uni
hann, að þarflaust sé við það að bæta? Eða liefir höf-
lirugðið yfir efnið |>ví nýju ljósi, að myndin af honum
verði önnur eða skýrari en hún áður var? Þeir lálendingar,-