Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1934, Blaðsíða 81
IÐUNN
Nútiðarbókmentir Bandaríkjamanna.
239
unum. Frægasta bók hans er Java fíead (á dönsku
Hans kinesiske Hustru), þar sem kínversk og vest-
ræn menning mætast og geta ekki umborið hvor
aðra. Kaupsýslumaður i borg einni á austurströndinni
kvænist kínverskri stúlku af tignum ættum, og sam-
búð þeirra endar á því, að hún fyrirfer sér.
IV.
Bölsýnir æskumenn.
í New York er borgarhverfi, sem heitir Green-
wich Village. Það er fornlegt, húsin smá og óreglu-
leg. Þarna varð alt í einu 1913 samkomustaður ýmsra
ungra listhneigðra manna — eða eins konar Unuhús
Bandaríkjanna. Þarna komu einkum þeir, sem fullir
voru órór og umbrota, vildu brjóta fjötrana og um
leið höfðu í sér löngun til að skapa sérstæða, heita,
en fíngerða list. Þeir gáfu út tímaritið The Masses,
og eins konar áframhald þess er tímaritið The New
Masses, sem ýmsir hér heima þekkja. í The Masses
birtu þessir ungu menn kvæði, sögur, leikrit, teikning-
ar og greinar. Sumt af þessu var listrænt fálm eftir
frumleik, en sumt aftur frábært að formi og fram-
setningu, en flest var það óvenju djarft og sérlegt.
Til þessarar hreyfingar, til kynþáttabaráttunnar og til
áhrifa heimsófriðarins eiga sérstæðustu listbókmentir
seinni ára í Bandrikjunum rætur sínar að rekja.
Eins og menn muna hér, voru ekki að eins ógnir
við heimsstyrjöldina tengdar. í sambandi við hana
voru líka vaktar fagrar og heillandi vonir. Upp af
blóðbaðinu átti að rísa fegurri og frjálsari heimur,
þar setn sarnúð og réttlæti ríkti. En alment munu