Kirkjuritið - 01.12.1947, Qupperneq 40
308
Aldarafmæli Prestaskólans:
Nóv. - Des.
arbræður þeirra í nágrannalöndum vorum hlutu. Það að
slík menntastofnun var komin á fót í landinu og tekin til
starfa varð til þess, að farið var að hugsa um að stofna
hliðstæðar menntastofnanir í öðrum fræðum, og leiddi það
til stofnunar Læknaskólans og síðar Lagaskólans, og þegar
þrjár sérstakar akademiskar menntastofnanir voru farnar
að starfa í landinu, lá sú hugsun nærri að sameina þær og
gera þær að Háskóla.
1 álitsgerð, er stjórnardeild málefna Háskólans og hinna
lærðu skóla i Danmörku (Direktionen for Universitetet og
de lærde Skoler) sendi konungi um skólamálið íslenzka 14.
maí 1841, er komizt svo að orði um Bessastaðaskóla, að
hann megi að miklu leyti teljast að vera háskóli landsins,
og er það rökstutt með því, að yfirgnæfandi meiri hluti
presta landsins njóti ekki annarrar menntunar en þeirrar,
sem þeir hljóti í skóla þessum. Með sama rétti hefði mátt
kalla fyrirrennara Bessastaðaskóla, Hólaskóla og skólana
á biskupsstólunum, háskóla. Þetta er réttmæli á þann
veg, að þótt skólar þessir veittu nemendum sínum engan
veginn menntun á borð við það, sem háskólar erlendis
gerðu, þá voru þeir látnir koma í þeirra stað. Mikill meiri
hluti lærðra manna varð að láta sér nægja þá menntun,
sem þeir fengu í Latínuskólunum. Hún var það veganesti,
sem þeir lögðu af stað með út í lífið, hún var sá fræðilegi
undirbúningur, sem þeir fengu undir lífsstarf sitt. Þessa
gætir að sjálfsögðu mest hjá þeirri stétt lærðra manna,
sem fjölmennust var, prestastéttinni. Hún var lang-
fjölmennust þeirra allra allt frá því að kristni kom fyrst í
landið og fram á síðasta mannsaldur. Þegar Páll biskup
Jónsson lét telja presta í Skálholtsbiskupsdæmi nálægt
árinu 1200, þurfti þangað „x presta miður en ccc tíræð“ Þ-
e. 290 alls. Ef vér gerum ráð fyrir, að tiltölulega jafnmarg-
ir prestar hafi verið í Hólabiskupsdæmi, þá mun láta nærri,
að hálft fimmta hundrað presta hafi þurft um þessar mund-
ir til þess, að öll prestsembætti í landinu væru skipuð.
Eftir siðaskiptin fækkaði prestum að vísu stórum. Þó voru