Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1949, Qupperneq 19

Kirkjuritið - 01.04.1949, Qupperneq 19
97 SÉRA PÁLL JÓNSSON hafnir hina beztu undirstöðu sannrar kirkjurækni. Fræðslu barna undir fermingu stundaði hann af mestu alúð og skýrði fyrir þeim hin helgu rit með nákvæmni, eftir því sem hæfði gáfnafari hvers og eins þeirra. Aldrei var hann strangur við börnin og aldrei vissi ég til, að hann atyrti nokkurt barn. Við þau, sem reyndust fáfróð eða skilningssljó, talaði hann með barnslegri einfeldni, svipað því sem kemur fram í hinum gull- fagra barnasálmi hans ,,Ó, Jesú, bróðir bezti.“ Virðist sem bonum hafi legið mest á hjarta, að börnin innlífuðust Jesú sem bezta bróður og vini, þá myndi Guðs ríki koma til þeirra °g Þau „lifa í Guði og Guð í þeim“. það er ekki mikið fyrirferðar, sem á prent hefir komið eftir séra Pál, en að kjarnanum til er það eigi lítils virði. Má þar vitanlega fremsta telja sálma hans í sálmabókum vorum. Enn- frenaur eru í svo nefndum prestahugvekjum, sem Pétur biskup Pétursson gaf út, hugvekjur átta að tölu (að mig minnir) eftir séra Pál. Loks er bænakver eftir hann prentað á Akureyri 1878. í því eru: Sjö bænir út af drottinlegri bæn, vikubænir m°rgna og kvöld, hátíða og helgidaga bænir, missiraskipta b®nir og sjómannabæn. Bænir þessar hygg ég, að megi telja eitt af því bezta, er prentað hefir verið á íslenzka tungu í þeirri grein. Þær eru einkar hjartnæmar og lýsa mikilli trúar- auðmýkt. Málið mjög hreint og fagurt alþýðumál, enda var hann mjög vel að sér í íslenzkri tungu. Einnig var hann með fremstu mönnum síns tíma um íslenzka bragfræði og sömu- teiðis sönglega þekkingu, einkum að því er sálmasöng snerti. ^egurðarnæmleikur hans í hvívetna var skýr og glöggur, en öll tilgerð og óþarft málskrúð fjarri skapi hans. í eðli sínu, hygg ég, að hann hafi verið bjartsýnismaður (optimist), þó þungar raunir og harmar hafi á efri árum dregið nokkurn fölva á bjartsýni hans. Eins og áður er getið, eignaðist hann með fyrri konu sinni 7 börn, er náðu fullorðins aldri, en öll dóu þau að honum lifanda nema einn sonur. Með seinni konu sinni (Önnu Sigríði Jónsdóttur Bergssonar úr Svarfaðardal) eignaðist hann 9 börn. Missti hann fjögur þeirra ung, en að- eins tvær systur lifðu eftir. Má geta nærri, hve þungir harm- ar slíkur barnamissir hlaut að verða fyrir jafn tilfinningaríkan °S viðkvæman mann sem hann var. Þess utan mun og fleira ömurlegt hafa mætt honum á lífsleiðinni, þótt hér verði ekki 7
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.