Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1949, Side 20

Kirkjuritið - 01.04.1949, Side 20
98 KIRKJURITIÐ frá því skýrt. En allt hið mótdræga bar hann með kristilegri þolinmæði sem sönn trúarhetja. í daglegu lífi var hann hvers manns hugljúfi, en að jafnaði fremur fáskiptinn og orðfár að fyrra bragði. Mjög var hon- um geðfellt að tala um skáldskap og fagrar listir, ef hann fyrirhitti mann, sem vildi taka þátt í slíku umræðuefni. Og þar sem hann var einkar glöggskygn að sjá, hvort heldur var um að ræða gullkorn eða galla bæði á bundnu og óbundnu máli, þá hlutu slíkar umræður að hafa þroskandi áhrif á hvern þann, er naut umræðna við hann um þessi efni. Gamansamur gat hann stundum verið, en mjög var gamansemi hans í hóf stillt. Fátækur mun hann hafa verið alla æfi sína, en vel komst hann þó af, enda var hann nægjusamur með fjárhag sinn og lifði óbrotnu lífi. Auk bama sinna, sem áður er getið, ól hann upp tvo fóstursyni; var annar þeirra honum vandalaus, en hinn var sonarsonur hans. Nokkrum árum áður en hann dó, fékk hann lausn frá prest- skap og mun hann hafa átt mikinn þátt í þeirri ráðstöfun, að Zophonías Halldórsson, sem séra Páll hafði kennt undir skóla, varð eftirmaður hans í Viðvíkurprestakalli. Sýnir það, eins og fleira, hina órjúfandi vináttutryggð séra Páls. Þessi lærisveinn hans jós hann moldu og flutti við gröfina stutta ræðu, en kona séra Zophoníasar, Jóhanna Jónsdóttir (háyfirdómara), orti erfiljóð, sem líka voru framflutt við gröfina. Að öðru leyti var jarðarförin viðhafnarlaus. Séra Páll andaðist 8. des. 1889. Blessuð sé minning þessa mæta manns. Jón G. Sigurðsson.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.