Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1949, Page 28

Kirkjuritið - 01.04.1949, Page 28
106 KIRKJURITIÐ skilnings á því, hver skylda hvíli á þeim sem kristnum mönnum. Slíkir flokkar þyrftu að myndast hvarvetna í heiminum. öll kristnin verður að vinna saman í anda réttlætis og kærleika að friði í viðskiptum þjóðanna. En til þess þarf samfélag kristinna manna að verða innilegra og dýpra — samfélag friðarins. Sá friður grær af Guðs friði......... Hin biðjandi kirkja verður að vera albúin þess að hlýðnast því, er Guð krefst af henni á úrslitastund. Nú berst til hennar um víða veröld kall frelsarans: Vakið og biðjið.“ Kröfur um meira sjálf- stæði kirkjunni til lianda. Víða um lönd, þar sem þróttur er í kirkjulífinu, bera menn fram kröfur um aukið sjálfstæði kirkjunni til handa. Þeim er það ljóst, að til þess að hún geti unnið það verk, sem henni er ætlað til eflingar trú og siðgæði þjóðanna, verður hún að vera sem óháðust öllu ytra valdi og ráða sjálf sínum málum. Vandamálin miklu, sem mannkynið á við að stríða, verða ekki leyst, nema kristindómurinn fái að komast þar að. Hann einn megnar að leiða það af glötunarvegi til lífs og frelsis. Þetta er nú mörgum tekið að skiljast betur en áður, og reisa þeir því vonir sínar á kirkjunni og frjálsri þróun hennar. Þeir sjá, að miklir umbrotatímar fara nú í hönd og kirkjunnar menn verða að byggja traust til þess að standast þá stormbylji, er munu skella á að utan. Kirkjuþings er nú óskað í ýmsum löndum og skírskotað til þeirrar blessunar, sem hafi hlotnazt af slíkri stofnun hin síðari árin. Þannig er það t. d. að meira eða minna leyti að þakka kirkju- þingi Finna og kirkjulegu sjálfstæði, hve kristnilíf þeirra stendur í blóma. Eru kirkjulög Finna frá árinu 1869 og tryggja kirkju þeirra fyllri sjálfstjórn og sjálfstæði en nokkur önnur Norðurlandakirknanna á við að búa. Þann- ig á kirkja Finnlands t. d. sitt kirkjuþing með miklu og víðtæku valdi. Það getur komið með tillögur um breyt-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.