Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1949, Page 37

Kirkjuritið - 01.04.1949, Page 37
SÁLUHJÁLPARSTARF I SVÍÞJÓÐ 115 orði Guðs og kirkjukenningunni, eins og hana er að finna 1 kverinu og sálmunum, þá hefði þetta aldrei komið fyrir • • • • við megum ekki gleyma hinni persónulegu trú — tfúnni, sem trúir á Tcenningu TárJcjunnar". Nú eru skelfilegir tímar fyrir vesalings séra Torvik og uthellir hann mörgum fögrum tárum yfir þessu „djöfuls- íns verki“, sem vinur hans Gunnar hefir framið. Ásakar hann sig þunglega fyrir að hafa sleppt af honum hendinni. En Gunnar er svo forhertur, að hann skynjar ekki þá synd, Sem fólgin er því að fjölga mannkyninu, og kemur hinn borginmannlegasti til altaris. Verður prestur svo hneyksl- a®ur yfir þessu, að honum er helzt í hug að stöðva athöfn- lna> þvi að honum þykir Gunnar nú vera „háskalega nærri Þeim landamærum, sem Júdas fór yfir“, en þó heykist hann á því. Er beðið kappsamlega fyrir honum þar í kirkj- ^mú af rétttrúuðum. Og þegar athöfnin er búin, þenur Prestur sig á reiðhjóli heim til Gunnars, til að bjarga sái hans. Helzta úrræðið er það, að pússa hjúin saman. Tek- Gunnar honum kurteislega en fremur þó fálega og fær ekki skilið, hvers vegna hann má ekki með góðu sam- komulagi eignast afkvæmi, án þess að það verk sé djöf- úkegt. Þykir honum það og vera meira einkamál sitt og stúlkunnar en prests, hvort þau hugsi til að giftast. Verð- Ur eftir það lítt af samræðum. tJt úr þessu uppistandi fer Gunnar i stríðið, til að drepa Rússa, og líkar séra Torvík t>að stórvel. (Stendur þó ekki í Guðs orði: Þú skalt ekki mann deyða?) Náttúrlega er svo stúlkan látin deyja af barnsförum, til að sýna ávöxt syndarinnar sem hræðileg- astan. En þetta kynni hún að hafa gert, þótt Gunnar hefði att hana. Lifir og mörg kona það af að eignast barn. En þetta er dramatískara. Gunnar er nú kominn það langt í syndinni, að presti finnst hann vera eins og Andkristurinn. Prestskonan vill taka að sér bamið og ættleiða það. En guðsmaðurinn er hræddur og hikandi: „Þorirðu þetta? Ég er hræddur við augun hans Gunnars. Hann var baldinn. Ef drengurinn er eins. ... Hugsaðu út í, hvað við tökum

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.