Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1949, Page 48

Kirkjuritið - 01.04.1949, Page 48
126 KIRKJUROTÐ ustumanna. Þið hafið snjóýtur, beltisvélar, bíla, og Lax- foss — og blessuð bömin ykkar fagna mjólkinni. En þegar hér fýkur allt upp og ofan og ekki sér út úr augunum fyrir stórhríð, og eini bjargræðisgripurinn, snemmbæran, fellur úr doða á nyrzta og fjarlægasta býl- inu í prestakallinu, frá tveimur ungbörnum, og ungu for- eldrarnir, sem eru vön beltisvélum og flugvélum og Lax- fossi ykkar, standa uppi ráðalaus, þá gerir ein af ungu húsfreyjum þessa byggðarlags sér lítið fyrir og fer dag- fari og náttfari í stórhríð um háfjöll og hengiflug og sækir litlu bömin, svo þau geti fengið mjólk. Og Guði sé lof, meðan þær eru í f jölbýlinu, og dreifbýlinu, og munu verða lengst, Dálksstaða- og Miklabæjarhúsfreyjurnar, og leyfa börnunum að koma til Jesú — og bera þau til hans, er margt og mikið gott að segja um íslenzkt kristnihald — þrátt fyrir margt, sem miður fer og móti blæs. Og þegar mér berast með póstinum sérprentuð lög um sóknargjöld (nr. 36, 1. apríl 1948) með grunngjaldi 3—6 kr., er búið að innheimta hér árum saman allt að 8 kr. sóknargjöld — og kirkjunum vel við haldið að áliti dóm- bærra manna, erlendra og innlendra, sem hér hafa ferð- azt. Og hvað verður um þessi kirkjuhús og sjóð þeirra (ásamt öllum öðrum jarðeignum og mannvirkjum), þessi kirkjuhús, sem ætla má að innan tíðar standi hér og drúpi, auð og yfirgefin? Ég ætla ekki að fjölyrða um þetta atriði, það hefir verið gert oft og víða, meðal annars með þessum ljóðlínum: Æskuvinur, ertu að fara, yfirgefa vora móður, þú, sem enn ert æskurjóður, alla vini og frændaskara? Og þú kippir, ungi vinur, upp með rótum nýtum gróðri, brýtur sundur björk í rjóðri. Brumið deyr, ef stofninn hrynur.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.