Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1949, Side 54

Kirkjuritið - 01.04.1949, Side 54
132 KIRKJURITIÐ réttir hann sig upp og segir við konuna: „Hvar eru þeir? Sakfelldi enginn þig? En hún svaraði: Enginn, herra. — Ég sakfelli þig ekki heldur, segir hann. Far þú, og syndga ekki upp frá þessu.“ Þarna stendur andlegur læknir lifandi fyrir hugarsjón- um vorum — læknir syndaranna. Þetta erindi átti Jesús líka, að reisa við og lækna hina föllnu og særðu, ásamt því að beina hinum markvissari og vegvísari leið til guðsríkis. Þetta verkefni á kirkjan enn, ekki að „grýta ef gæfunni hnignar,“ heldur að reisa við, leita að hinu týnda og frelsa það, — eins og Kristur. 1 hinum ægilega, blinda hernaði styrjaldanna, innir Rauði krossinn líknarstarfið af hendi — og gefst ekki upp, þótt magn bölsins yfirþyrmi. Þannig vill og þannig á kirkj- an að reka sína Rauða-kross-starfsemi — einnig í andleg- um efnum. Þó að margur hefðarmaðurinn, margur ráð- herrann og prófessorinn, jafnvel í voru landi — auk heldur fyrirferðarmestu fjáraflamenn þess — kunni enn að geta sagt við boðskap kirkjunnar eins og Felix landstjóri við Pál: „Far burt að sinni; en þegar ég fæ tóm, mun ég láta kalla þig;“ og þó að þunnskipað verði um skeið í guðs- þjónustuhúsum þessa lands á helgum tíðum; og þó að sjald- gæft muni vera að sjá leiðandi menn veraldarvaldsins skipa sér við altarisgrindumar til þátttöku í hinni undrafögru og háleitu athöfn kirkjunnar, altarissakramentinu — eins og væri hún aðeins leifar liðinna tíða, þá veit kirkjan, — þá vita jafnvel hinir veikustu þjónar hennar það, af dýrlegri reynslu, að þar getur magn náðarinnar flóð yfir, að þar geta opnast dyr til æðri heima og lindir guðslífsins streymt niður. — Því býður Guð ennþá: „Farið laðið, leiðið, — leitið, kallið, biðjið, þrýstið, neyðið.“ Hvort er því fegurra: Áferðarfallegt siðferði eða mikil náð? Hvort er sterkara og eftirsóknarverðara, að hafa vit og vilja til að uppfylla hin helztu siðalögmál og geta þakkað fyrir að vera ekki eins og aðrir menn, eða að vilja og geta tileinkað sér friðandi náðartilboð hin hæsta við

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.