Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1949, Page 55

Kirkjuritið - 01.04.1949, Page 55
133 NÁÐARGÁFA VEIKLEIKANS Þjón hans: ,,Lát þér nægja mína náð, því minn kraftur fullkomnast í veikleika.“ Því miður fer þetta tvennt sjaldn- ast saman. En fari það saman, skapar það mikilmennið. Þess vegna byggir kirkja Krists tilveru sína, starf sitt og framtíð sína á undri náðarinnar, fremur en á niðurstöðum ^annlegrar siðferðisviðleitni — það sem hún nær. Þess Vegna varar hún við Faríseanum. Þess vegna á enginn af t>eim, sem boðnir voru til kvöldmáltíðarinnar, en höfnuðu tenni, að smakka hana, en smælingjunum — jafnvel utan g'n'ðinga veraldarvelgengninnar, er safnað saman til veizlu- halda. — Hvort er því meira hnoss: Jarðneskur styrkur, an náðar, eða veikleiki með Guðs náð? Ég kýs veikleikann °g náðina. Og loks einnar syndarabænar hann bað. Þá blikuðu tár á Mosfellsstað. Með þeim orðum túlkar skáldið skriftir hins veika þjóns i lok hins volduga óðs. Sú getur komið stund, að tárin blika, jafnvel í auga ^aríseans, þegar ylstraumar kærleika Guðs velja sér leiðir Um náðargáfur veikleikans. Náð Guðs mýkir hinn styrka og styrkir hinn veika. Ólafur Ólafsson. LENDING Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI Sól gyllir sal fjalla, sjón eygir Frón teygja hátt tinda. Hratt skundar há vélin blá hvelin. Tún greinast, græn sýnast, grá flesja blá Esja. Brátt lendir létt gandur, leið brunar. Skeið dunar. Sigurður Norland.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.