Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1949, Qupperneq 58

Kirkjuritið - 01.04.1949, Qupperneq 58
136 KIRKJURITIÐ sér þegar í upphafi fyrsta fundar 1. og 2. varaforseta og tvo skrifara. 14. gr. Þann tíma, sem kirkjuþingsmenn sitja þingið, hafa þeir dagpeninga, 15 kr. á dag, auk uppbótar eins og ákveðin er starfsmönnum ríkisins. Ennfremur fá þeir greiddan ferða- kostnað samkvæmt úrskurði 3 manna þingfararkaupsnefndar, er kirkjuþing kýs. 15. gr. Kirkjuþing getur tekið fyrir, rætt og gert ályktanir inn öll þau mál, er varða hina íslenzku þjóðkirkju, bæði kirkj- una í heild og einstaka söfnuði. Það getur þó ekki gjört álykt- anir um kenningagrundvöll kirkjunnar, svo sem hann er ákveð- inn í stjórnarskrá ríkisins, né túlkun kirkjukenninganna. Kirkuþing skal að jafnaði láta í ljós álit sitt um kirkjuleg lagafrumvörp, er liggja fyrir Alþingi. Kirkjuþing getur afgreitt mál sín í frumvarpsformi eða ályktunar og sent þau biskupi, ríkisstjórn, Alþingi, prestastefnu eða kirkjuráði. 16. gr. Kirkjuþing kýs úr sínum hópi 4 menn í kirkjuráð, og skulu tveir þeirra a. m. k. vera guðfræðingar. Það kýs og jafnmarga varamenn. Kjörtímabil kirkjuráðsmanna er hið sama sem kirkjuþingsmanna. Kosning í kirkjuráð samkvæmt lögum þessum fer þá fram, er hið fyrsta kirkjuþing kemur saman. 17. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi, og eru þá jafnframt numin úr gildi þau ákvæði í lögum um kirkjuráð frá 9. apríl 1931, er fara í bága við lög þessi. GREINARGERÐ : Kirkjuþing fyrir hina íslenzku þjóðkirkju hefir verið áhuga- mál prestastéttarinnar um hálfrar aldar skeið. Skömmu eftir síðustu aldamót samdi meiri hluti þáv. kirkju- málanefndar, þeir séra Árni Jónsson á Skútustöðum, séra Eiríkur Briem og séra Jón Helgason síðar biskup, frumvarp um þetta efni, sem þó ekki náði fram að ganga, þrátt fyrir atfylgi ágætra manna. Málinu var þó haldið vakandi, og fyrir allmörgum árum bar prófessor Magnús Jónsson fram á Alþingi frumvarp til laga um kirkjuþing. Frumvarpinu var yfirleitt vel tekið en náði þó ekki afgreiðslu. Fyrir síðustu Prestastefnu (1948) var, að tilhlutan biskups, lagt frumvarp til laga um kirkjuþing. Var málinu vel tekið og kjörin 5 manna nefnd til þess að athuga frumvarpið nánar. Lauk nefndin því starfi nú i haust, og sendi síðan öllum prestum lands- ins til athugunar og umsagnar frumvarpið með þeim breytingum, er hún hafði á því gjört.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.