Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1949, Page 66

Kirkjuritið - 01.04.1949, Page 66
Hvenœr var síðasti sigurinn unninn? Það, sem hér verður sagt, er að nokkru leyti þýðing, þó lausleg sé og ósamfelld, úr bók eftir franska rithöf- undinn og dulspekinginn Edward Schuré. Hefir hann rit- að bók um hina helztu trúarbragðahöfunda og andlega leið- toga, sem fram hafa komið með mannkyninu á liðnum öld- um, og síðasti kafli bókar þessarar er um Jesú Krist. Bók þessi hefir komið út í 20—30 útgáfum á frönsku, en auk þess verið þýdd á tungur allflestra menningarþjóða, og hvarvetna vakið athygli, þó ekki geti allir fellt sig við eða verið sammála skoðunum höfundarins. Síðasti kaflinn, um Jesú Krist, er einkum athyglisverður vegna þess, að í skiln- ingi sínum á honum sameinast hjá höfundinum djúp og einlæg lotning fyrir Guðssyninum, sem ekki kom í heim- inn til þess að láta þjóna sér, heldur til að þjóna öðrum og láta líf sitt til lausnargjalds fyrir marga, og á hina hlið- ina dulrænn skilningur á persónu hans og starfi, og gætir þar nokkurra áhrifa frá helgisögnum og mystik hinnar kaþólsku kirkju. Og höf. heldur því jafnframt fram, að það, sem kirkju nútimans og trúarlífi almennings standi mest fyrir þrifum, sé það, hve mikið af hinum dulrænu visindum, hinum hreina sannleika, sem Jesús og aðrir inn- blásnir sendiboðar Guðs hafi opinberað mannkyninu, hafi aftur glatazt og gleymzt. Sjálfur hyggst höf. búa yfir hinni algeru þekkingu og fullkomna skilningi, og geta leyst hverja þá gátu, sem til þessa hefir orðið mannkyninu tor- ráðin, þegar um Jesú, persónu hans og starf hefir verið að ræða. Rekur hann sögu Jesú frá upphafi til enda og skýrir frá sínu sjónarmiði.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.