Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1949, Page 70

Kirkjuritið - 01.04.1949, Page 70
148 KIRKJURITIÐ þær og varpa styrk þeirra til jarðar.“ Átti hann að verða nýr Makkabei og láta hrópa sig til prestakonungs? Hann vissi um þann fjölda Gyðinga, sem aðeins beið eftir kalli foringjans. Hjá sér fann hann kraftinn. En — mundi vald- ið buga valdið, eins og hér horfði við? Mundi sverðið nokkum tíma gera endi á yfirráðum sverðsins? Mundi það ekki miklu fremur auka makt myrkranna, sem al- staðar lá í leyni til að hremma bráð sína? Væri ekki sigurvænlegra og réttara að gera öllum opin- beran þann sannleika, sem hingað til hafði verið einka- eign örfárra útvaldra, dulvísra manna, og opna hjörtun fyrir eftirvæntingunni eftir þeim tímum, þegar sannleik- urinn nær inn í skilning mannanna fyrir innri opinberun og vaxandi þekkingu? Eða með öðrum orðum: Prédika guðsríki fyrir þeim, sem hungra og þyrsta; stofnsetja ríki náðarinnar í stað lögmálsins, umbreyta mönnunum hið innra, og að fullu, með endurnýjungu hugarfarsins og end- urfæðingu sálnanna. Hver skyldi þá bera sigur frá borði, Guð eða Satan? Andi vonzkunnar, sem drottnar voldugu alræði yfir jörð- inni, eða hinn guðdómlegi andi, sem ræður yfir ósýnileg- um himneskum herskörum og leynist í hjarta hvers mann- legs bams, eins og neistinn í tinnusteininum? Hver mundu verða afdrif þess spámanns, sem dirfðist að rífa sundur fortjald musterisins og sýna, að þar væri ekkert að baki, sem byði Heródesi og Cæsari báðum birginn? Einmitt þetta var það, sem varð að gerast. Rödd hins Eilífa hrópaði til hans segjandi: Stattu upp og talaðu! Það var aðalatriðið, að finna hið lifandi og lífgefandi orð, þá trú, sem flytur fjöll, þann kraft, sem ekkert stenzt við. Þegar hér var komið, tók Jesús að biðja og bað af allri sálu og öllu hugskoti. Mikill ótti kom yfir hann; vaxandi órósemi og skelfing greip hann. Honum fannst hann vera að glata þeirri dásamlegu sælukennd, sem hann hafði áð- ur átt innra með sér, eins og hann væri að berast út á botnlaust og koldimmt hyldýpi. Umhverfis hann var bik-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.