Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1949, Side 81

Kirkjuritið - 01.04.1949, Side 81
FRÉTTIR 159 Þá var tekið fyrir aðalmál fundarins: Sálgæzla og samvinna Presta og lækna á því sviði. Framsöguerindi fluttu Alfreð Gísla- son læknir og séra Þorsteinn L. Jónsson. Urðu allmiklar um- ræður og tóku flestir fundarmanna til máls. Framsöguerindin voru að kvöldi 4. sept. flutt fyrir almenning í Ólafsvíkur- kauptúni. Sunnudaginn 5. sept. kl. 10 árdegis hélt séra Sigurbjörn Á. Gíslason bamaguðsþjónustu í Ólafsvíkurkirkju. — Klukkan 2 messuðu fundarmenn á Ingjaldshóli, Ólafsvík og Hellum. Kl. 7 síðdegis söfnuðust fundarmenn saman á Staðastað og héldu bar guðsþjónustu, en við lok hennar fór fram altarisganga. í sambandi við messur á Hellum og Staðastað voru stofnaðar tvær slysavamadeildir, fyrir forgöngu prestanna séra Jóns M. Guðjónssonar og séra Þorgríms Sigurðssonar. Fundur stóð til miðnættis og ýms mál rædd, en honum síðan slitið með bæn og sálmasöng. Hallgrímsdeildarmenn nutu ríkulegrar gestrisni prestshjón- anna í Ólafsvík og á Staðastað, meðan fundurinn stóð yfir. Sigurjón Guðjónsson. prú Sigurlaug Knudsen, ekkja séra Ludvigs Knudsens, andaðist hér í bænum 24. aPríl, 85 ára að aldri. prestsekkja tíræð. Frú Þorbjörg Pálsdóttir á Bjamastöðum í Hvítársíðu varð 100 ára 6. apríl. Hún er tvígift. Fyrri maður hennar var séra Jón Hjartarson að Gilsbakka og hinn síðari Páll Helgason, bóndi á Bjarnastöðum. Hún er mikil ágætiskona og merkis- kona. Kirkjuritið óskar henni allrar blessunar. Söngskóli Þjóðkirkjunnar. Sigurður Birkis söngmálastjóri hefir komið þessum skóla á stofn, og hefir hann starfað í vetur með góðum árangri. Áuk söngmálastjóra kenna þeir við skólann Guðmundur Matt- híasson kennari og Páll Kr. Pálsson organleikari. Nemendur v°ru alls 30 í vetur. Gjöf til Háskólakapellu. Frú Rannveig K. G. Sigfússon, Laski Sask., Canada hefir Sent kapellu Háskólans að gjöf kr. 32.50. Kærar þakkir.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.