Kirkjuritið - 01.12.1972, Page 8

Kirkjuritið - 01.12.1972, Page 8
 heyrða. Þvl að daglegt brauð er mikil Guðs gjöf. Velkomin sértu, mylla." „Þökk." Og árin liðu, og prestar komu og fóru, en söfnuðurinn var samur. Og sóknin var söm og kirkjan hin sama, Guðsorðið sama. Skammt neðan kirkjunnar reis einnig skóli. „Og hver ert þú?" sagði kirkjan. „Skóli er ég reyndar. Margir slík- ir eru byggðir um gervallt landið. Ég á að gera menn úr börnum. Með þekkingu." „Guðhrœdda menn?" „Að sjálfsögðu." „Gott er það. Velkominn vertu, skóli. Börnin, um þau er nœstum mest vert af öllu, sem oss er á hend. ur falið. Láttu þér annt um þau. Kenndu þeim að byrja daginn á morgunsöng og bœn til Föður vors og gerðu þau að upplýstum, vitrum og þrautgóðum mönnum, þá verður þú mér til mestu hjálpar, skóli." „Þökk." Og árin liðu. Og prestar fóru og komu. Sóknin var söm, þótt sjá mœtti breytingar. Nú gengu bœndur beinni, börnin betur til fara, og sálmasöng- urinn í kirkjunni varð hreinni, mönn- um varð betur til vina. En kirkjan var söm. Dag nokkurn var svo sam- komuhús reist. „Hver ert þú?" spurði kirkjan. „A, veiztu það ekki? Ég er sam- komuhús. Þau eru mörg byggð um gervallf landið." „Og hvað er þér á höndum?" „Hvað, já—, í mér œtla þeir að iðka leikfimi — t.d." „Nú, — já, — gott er nú það. Hvað fleira?" „Já, svo — svo geta þeir einnig haldið fundi og flutt erindi í mér — sérðu." „Erindi?" „Já, svona — rœður — sum sé. „Þœr fá þeir nú hjá mér." „Já, — en •—- það er ekki nóg — sérðu." „Nú, — þannig — já, — ég — dugi þeim ekki lengur." „Nei, — við verðum að fá að gera eitthvað dálítið meira en ganga í kirkju einungis." „Hvað þá?" „Já, þeir ungu t.d., — þeir þurfo að skemmta sér dálítið, — fá svona smá — dansleik, — er ekki svo? „Þeir ungu að skemmta sér? Þeif hafa nú skemmt sér undanfarin 500 ár, — þótt þú vœrir ekki." „Já, reyndar, jú, — á heimilunum- En-----------." „Nú, heimilin duga kannski ekkí heldur?" „Jú, jú, — þ.e.a.s. tlmarnir breyt' ast nú. O.s.frv." „Þú ert mér hálfgerð ráðgáta, þ° — samkomuhús. Það er líkast þvl' að þú sért að dylja mig einhvers, sem þú vilt ekki við gangast. Surnt af þvi, sem þú segir, er nógu gott' en sumt veldur mér sannarlega tals verðum áhyggjum. Ég get ekki boð ið þig velkomið, fyrr en ég se, hvers þú dugar." „Ekki það? Það hefur reyndar eng- inn beðið þig að bjóða oss velkom- in. Það er ekki frekar þitt en v°' hinna að bjóða einhvern velkomin°; Þú gleymir víst, að nú heitir e 1 294

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.