Kirkjuritið - 01.12.1972, Blaðsíða 12
er það ekki, að Guð metur einskis veraldar prakt. Og veröld-
in skynjar hvorki né metur nokkurs það, sem Guð framkvcemir.
Þessi er minn elskaði sonur, sem eg hefi velþóknun á
Matt. 3:7
Þegar þetta er mœlt, þá er það sem Guð segi við okkur: Hér
gef eg þér alla náð mína og allan kœrleika ásamt öllum öðr-
um velgjörðum. Allt, sem eg á og býr mér í hjarta. Til þess að
þú efir þetta ekki, þá gef eg þér ekki Móses eða spámann,
ekki engil eða dýrling, ekki fjársjóði af gulli og silfri né aðrar
gjafir jarðneskar eða himneskar, heldur elskaðan einkason
minn. Þannig gef eg þér mitt eigið hjarta, hina eilífu og sönnu
uppsprettu allrar náðar og vonar, sem enginn engill né sköp-
un, hvorki á himni né jörðu fœr skilið. Þessi sonur minn skal
vera þér tákn og tryggðarpantur um náð mína og kœrleika,
þegar syndir þínar hrœða þig. Hann er frá fœðingu einka-
erfingi alls hins skapaða, þannig getur þú í trú á hann verið
barn mitt og erfingi, meðeigandi alls þess, sem hann á og veit-
ir. Auk þess sem hann gefur þér hlutdeild í arfi sínum og
réttindum, er hann hlaut í öndverðu, þá hefir hann einnig
með þjáningu sinni og dauða áunnið þér það, að þú ert barn
hans og samarfi að öllum gœðum hans, því að hann er œðsti-
prestur þinn og hirðir. Sjá nú til. Hvað getur hann meira gjört
eða gefið, — eða hvað getur eitt mannshjarta hugsað sér og
þráð, sem er þessu betra og háleitara?
Dr. Marfeinn Lúther: Nun Freut euch lieben Christen gmein.
298