Kirkjuritið - 01.12.1972, Side 92

Kirkjuritið - 01.12.1972, Side 92
hafti, svo sem serkurinn má vefjast um fœtur honum eða fjúka fram um höfuð honum, ef hann er eigi gyrtur." Linda fylgir þessi bœn: „Gyrð lendar minar linda hreinleikans og deyð þú lastafýsnir mínar, að eg megi með gleði meðtaka endurgjald erfiðisins. Fyrir Drottin vorn--------." Hökull Hökullinn er yztur messuklœða. Hann er aðeins notaður við messur, hvort sem biskup eða prestur messar. Hök- ullinn var yfirhöfn almennings í Rómarríki til forna, en á fjórðu öld aflagðist hin rómverska toga og þá varð hökullinn tízkufat fram til um 600. Ur því lagðist hann niður, en þá hélt kirkjan honum áfram sem messuklœði. Upphaflega var hökullinn úr u11 eða lérefti, en þegar silkið kom til um 1000, varð það fljótt ofaná. Hök- ullinn var sniðinn í hálfhring og saumaður saman að framan. Þann- ig varð hann klukkumyndaður. Hann var jafn síður allt í kring og nœrri skósíður. Framan af voru skreytingar sjaldgœfar á höklum. Fyrst var lagð- ur borði að framan yfir sauminn, síðan var lagður annar á bakið, og loks komu borðar yfir axlir eða upp- handlegg, og tengja þeir hina borð- ana saman. Þannig myndaðist gaff- alkross sá, sem algengur er á gotn- eskum höklum. Á seinni hluta mið- alda tíðkaðist íburðarmikil baldýring á höklum til skreytingar og til að koma að helgum táknum. Á gotn- eska tímabilinu voru skörð tekin í hliðar höklanna, svo að hendurnar œttu hœgara um störf. Á barokk- tímanum styttist hökullinn mikið. Á 20. öld hefur hökullinn breyzt aftur í áttina til fyrri gerðar. Hökullinn hefur haft ýmis nöfn. rómversku kirkjunni nefnist hann „Casula". Er það nafn dregið af orð- inu casa (kofi). Nafn þetta tíðkaðist fyrst norðan Alpafjalla, en áður kall- aðist hökullinn í Róm „planeta". ^ Frakklandi hét hann til forna „Amphi' bulum". Um miðjar miðaldir nefndist hann bœði á Englandi og Frakklandi „Insula". Hökull er germanskt orð og talið jafn gamalt hinu rómverska. “ gotnesku notar Úlfila orðið „Hakuls Á íslandi eru tvœr myndir þessa orðs, önnur hökull, sem notað er am messuklœðið. Hin er hekla, sem var nafn á veraldlegu fati, sennileg0 svipuðu sniði. í Norna-Gests-sögu kemur Óðinn fram í heklu og kaIlast heklumaður. Hið bezta nafn ®r paenula, sem leitt er af gríska °r inu fainoles. Orðið failonen kemur fyrir í 2. Tim. 4, 13. Þar hefur Oddu| Gottskálksson þýtt það með mötta en ekki hökull eða hekla. Sama ha a allir biblíuþýðendur gert siðan. Um hökul segja hinar fornu skýr, ingar: „Hökull er svo sem tjaia ^ utan um önnur messuklœði, jarte'^ ást, sem œðst er mannkosta prestur skyldi jafnan láta yfirbreg ast í öllu athœfi sínu." Þessi bce ^ fylgir hökli: „Drottinn, þú, sem sa^ hefur: Ok mitt er indœlt og byrði létt, veit mér að bera hvort tveg9l svo, að þér sé þóknanlegt. Fyrir Dro in vorn 378

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.