Jörð - 01.09.1940, Side 65
STYRJÖ
AÐ getur varla bori'Ö sig, aÖ tímarit sem JÖRÐ komi svo
út, að þaÖ reyni ekki að leggja sitt af mörkum til þess, að
þjóð vor fái áttað sig sem bezt á stórtíðindum þeim, sem
nú eru að gerast í heiminum. Vitanlega er, eins og stendur, eng-
in leið til þeirrar yfirsýnar, er láti allt koma fram í réttum hlut-
föllum. Hinsvegar er þó óhjákvæmilegt fyrir oss Islendinga að
tjalda því, sem til er; reyna að meta fregnirnar eftir beztu getu.
JÖRÐ leggur í þessu efni fyrst og fremst til greinaflokk eftir
þann mann íslenzkan, sem talinn er hafa mestan kunnugleik á því,
sr. Sigurð Einarsson. Greinar Sigfúsar Halldórs frá Höfnum, um
samskonar efni á takmarkaðra sviði, hafa verið troðnar af upplýs-
ingum, og er það til marks um ágæti þeirrar fréttaþjónustu, að
jremsta vikublað Bandaríkjanna, „Time“, varð á eftir JORÐ
nieð merkilegar upplýsingar frá Suður-Ameríku, sem Sigfús náði
í, á meðan hann var að skrifa greinina í 2. heftið. í þriðja lagi
rcynum vér, aftast i hverju hefti, að bregða upp Ijósi kristinnar
trúar yfir þessa örlagatíma og viðhorf þjóðar vorrar við þeim.
I fjórða lagi þykir oss hlíða, að birta valinn samtíning úr ensk-
um og amerískum vikublöðum og mánaðarritum. Fara þær smá-
greinar hér á eftir með fjölda mynda, er snerta styrjöldina á einn
eða annan veg.
LDIN
I. Flugvélategundir
\ JIÐ heyrum daglega nefndar „Hurricane"- og „Spitfire“-flug-
* urnar ensku. Þær eru einmenningsflugur með rúml. iooo hest-
afla hreyfli. Þær geta hækkað sig um 20000 fet á 9 mínútum.
Árið 1938 flaug „Hurr-icane"-fluga 327 enskra mílna vegalengd
nie'Ö 407 núlna hraða á klukkustund — m. ö. o. náði um 700 km
hraða. „Hurricane“-flugan hefir 8 vélbyssur i vængjunum. Bolur-
ínn er rúml. 31 fet; vængjatakið 40 fet. — „Spitfire“-í\uga.n er
mmni og heldur fljótari. Hún er og með 8 vélbyssur í vængjun-
Um- —- „Mcsserschmitt“-ílugnn þýzka hefir náð 467 enskra milna
úraða á reynsluflugi. Hún hefir 37 mm fallbyssu, er skýtur út
Um skrúfuásinn, miklu skæðari, en vandhittari skotum en vélbyss-
Urnar. Ýmsar enskar orustuflugur eru nú orðið útbúnar með smá-
fallbyssu. — Nýjust brezkra orustuflugvéla, þeirra, sem kunnar
Jörð 207