Prestafélagsritið - 01.01.1921, Side 158
Prestafélagsritiö.
Guðsríki er nálægt.
153
ræðilegur fögnuður tekur að bærast hjá henni. Guðsríki
er komið þar sem Jesús er. Máttur þess og dýrð Ijómar
af ásjónu hans. Það breiðist út yfir alt, þar sem guð er
og vilji hans ræður. Hann boðar að það sé i nánd. Og
hversu nálægt var það. Lifandi guð birtist mitt á meðal
mannanna. Veruleikaheimurinn hans mikli tekur að risa
og yfirskyggja þennan fallvalta sjónarheim og Jesús vill
leiða hvert barn hans þangað inn. Mennirnir lifa það, að
guð er sannarlega til og þeir vakna við. Það verður and-
leg hreyfing hjá öllum stéttum þjóðarinnar og flokkum,
einnig hjá þeim, sem dýpst eru sokknir í spilling og eymd.
Ódauðlegar sálir safnast að uppsprettu lífs sins. Svölun
fæst við dýpstu þrá mannsbjartans: Eins og hindÍD, sem
þráir vatnslindir, þráir sál mín þig, ó guð. Það sem engin
rök og engar fortölur geta veitt fæst við reynsluna hjá
Jesú. Menn yfirgefa alt og fylgja honum. Samlifið við guð
í honum stendur öllum til boða. Guð er í nánd, ekki að-
eins í heiminum hið ytra, heldur síðasl og fyrst í manns-
sálunum hið innra.
Verður okkur þá ekki þannig ljóst, að það að taka á
móti guðsríki er alveg sama sem að veita guði viðtöku í
lif okkar, og að leiðin til þess að styðja að andlegri vakn-
ingu er sú ein, að leitast við að feta í fótspor Jesú eftir
því sem auðið er? Við þurfum ekki að láta hugfallast yfir
því svari, þótt okkur kunni að sýnast það rísa við himin
framundan okkur eins og ægilegur hamraveggur, því að
inst í hjarta okkar mundum við ekki vilja koma auga á
annað svar. Og það er huggun okkar og styrkur, að öll
einlæg viðleitni í þessa átt, — hversu veik og ófullkomin
sem hún kann að vera að öðru leyti, — mun vissulega
hafa árangur í för með sér og andi Krists fylgja henni.
Þó líkingin sé ekki mikil þá er guðsríki boðað á þann
hátt í sannleika. Ljósið frá Jesú verður að falla á líf
okkar og störf hið innra og hið ytra, — og það mun um-
mynda þau dag frá degi við sömu djúpu áminningu og í
öndverðu: »Gerið iðrun og trúið fagnaðarboðskapnum«.