Prestafélagsritið - 01.01.1921, Side 166
Prestafélagsritið.
Guðsríki er nálægt.
161
við aðra, því að rödd i brjósti okkar segir fullskýrt: Þú
átt að gera það, og þú getur gert það. Við getum ekki
daufheyrst við því kalli hans án þess að verða við það
bæði minni og verri menn. Það er aðeins eitt svar, sem
sæmir og veitir hjartanu frið, svarið forna: Hér er eg.
Sendu mig.
»Guðsríki er nálægt«. Biðjum hann sem trúði okkur
fyrir málefnum sínum í heiminum og hét að vera með
okkur í anda til enda veraldar, að gefa okkur viljann
og kraftinn.
ERLENDAR BÆKUR.
DANSKAR BÆKUR.
Hans Martensen-Larsen: ))Jairi Dalter. Fredlyslc Minder fra
den evige Strid mellem Liv og Död«. Frimodts forlag 1920. Verð
kr. 7,50. — Höfundurinn er íslenzkum prestum kunnur. Frá þvi
árið 1894 hefir hann sent frá sér hverja bókina annari efnisríkari
og gagnauðugri að frjóvgandi hugsunum, pó hin sígilda bók hans
»Tvivl og Tro«, muni sizt falla úr minni. Hér hefir höf. ritað
einskonar framhald þeirrar bókar. Höfundur hefir mist dóttur
sina uppkomna úr kvefpestinni spönsku, er fór aftur yfir löndin
1920. Eftir lát dóttur sinnar fer faðirinn sorgmæddi að lesa dag-
bækur hennar og bréf, og sér þá að einmitt bók hans sjálfs »Tvivl
og Tro« hefir vakið hjá lienni efasemdir og sálarstrið, er hún
að lokum vinnur sigur á. Bréf og bækur eru ritaðar af sömu
einlægni og hreinskilinni sannleiksást göfugs hjarta, sem oss er
kunn af »játningum« föður hennar. Er þar trúar-sáifræöi, er
tekur jafnmikiö fram samandregnum fræðikerfunum, sem ferð
um landið sjálft ber af ritaðri landlýsingu. En jafnframt leiðir
höfundurinn lesandann inn í helgidóm sorgarinnar. Hann réttir
lesandanum hlýja bróðurhönd sína og leiðir hann með sér fyrst
að likbörum afa sins, Martensens biskups, og síðan að dánar-
heði annara eldri og yngri ástvina sinna. Og er vér fylgjum höf-
undinum á þeirri göngu, þá sjáum vér annarsvegar hve einföld
11