Prestafélagsritið - 01.01.1921, Side 167
162
Erlendar bækur.
Prestafélagsritið.
og lállaus frásögnin tekur fram allri skáldlist, og binsvegar hve
skamt er úr hclgidómi sorgarinnar upp í helgidóm sjálfs drottins.
»Standið íjarrk —- segir Matlhías um dánarbeð Hallgríms.
»Procul este profani!« hefir höfundur ritað á fremsta blað þess-
arar bókar. Undir lestrinum er sem vér heyrum klukknahljóm,
hægan en þungan. Og oss koma í hug orðin í Exodus 3, 5: »Drag
skó þína af fótum þér, þvi sá staður, er þú stendur á, er heilög
jörð«. — Bókin er ætluð sorgarmönnunum fyrst og fremst, eins
og bók sama höfundar: nBroder og Söster. Et Ord til Opmuntritig
fra den spanske Sgges Tid«.
H. Marlensen-Larsen: y>Folkekirken Folkets Kirke«. 0. Lohse.
Köbcnhavn 1919. — Bók þessi er gefin út af þjóðkirkjuvinum
i Danmörku, og ræðir hún um fríkirkjumálið frá þeirra sjónar-
miði. Nafn höfundar segir hvernig bókin er.
Kristelig-sociall Forbunds Skrifter. — Félag i Danmörku, er
nefnist »Kristelig-socialt Forbund« gefur út fræðandi rit um
félagslegu vandamálin, og skýrir frá starfi kristinna félagshyggju-
manna í hinum stærri þjóðlöndum, einkum Englandi. En þar
er félagshyggjan vingjarnlegust kirkju og kristindómi, eins og
sjá má af ræðum enskra verkamannaleiðtoga, svo sem A. Hender-
sons, J. Iieir Hardie, G. Lansbury o. fl., sem jafnast á við kirkju-
ræður presta. Meðal rita félagsins má nefna: y>Broderskabsbe-
vœgelsen i England«, vSociale Forpligtelser og Land-Reformer«
og nDen ngere kristelig-sociale Bevœgelse indenfor den engelske
Slalskirkeu, eftir Richard Thomsen sóknarprest i Höfn. Ritin eru
öll hin læsilegustu og vekjandi til umhugsunar um þau vanda-
mál, er meslum áhyggjum valda hugsandi mönnum nú á timum.
í ritum félagsins er og bent á ýmsar liinar merkari bækur um
þessi mál.
Ritsafnið Kirke og Folk X. »1 den aandelige Krise« af Manfred
Björkquist, rektor i Sigtuna. Gyldendal 1920. — Björkquist er
æskuleiðtogi sænsku kirkjunnar og eldkveikjumaður. Kennir
þess einnig í þessari bók. Hún er rituð af alvöruþrungnum
áhuga og fjöri, og kennir þar ekki skrifstofubragðs. Borgar sig
að kynnast manninum, enda á margt í bókinni erindi lil vor.
»Agnes Roihe. Et Livsbillede. Udgivet af Hans Koch«. Köben-
havn 1918. — Ósjálfrátt væntum vér venjulega lítils lærdóms af
öllum þeim sæg bóka, sem ritaðar eru á erlendum tungum um
góðar og göfugar ungmeyjar, þó trú þeirra og kristilegt hugar-
far líði aldrei úr minni nánustu ástvina þeirra. Öld vor forðast
klökkvihreiminn og vill heldur fá að vita hvernig karlmennið
og þróttlundin kemur til guðs síns. Heiti bókarinnar vekur því
ekki löngun til lestrar. En eftir lesturinn verður dómurinn