Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1989, Síða 32

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1989, Síða 32
30 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ hún hafði sótt menntun sína til og hafði svo miklar mætur á, og vildi auka samband sinnar þjóðar við. Hún vissi að Islandsveiðarnar höfðu verið þó nokkuð mikilvægur þáttur í efnahagslífi Frakka, auk þess sem fyrr segir, að þennan þátt átti alger- lega eftir að rannsaka í íslenzku þjóð- arsögunni. Þarna sat framtíðarforsetinn við þessa iðju veturinn 1970-71 og var alltaf að rekast á sitthvað forvitnilegt og fróðlegt í frönskum gögnum. Forsetinn á í sínum fórum mikinn búnka af minniskompum og minnis- löppum, en þar er allt ritað á frönsku. Ég kann ekki annað mál en bolvísku og talaði hana við Forset- ann, og hann var þar heima, því að hann kann einnig það mál eins og svo mörg önnur, enda er vísa séra Þor- valdar, afa Forsetans, ort á því máli fornu, amma mín hét Valgerður, og hana nefndi afi ævinlega Valgerdi. Og svo er það hin alkunna vísa, ort í Bolungavík, „Nordan hardan gerdi gard“, og í þessum eina punkti kom málakunnátta mín og Forsetans sam- an. í þessum frönsku skýrslum var náttúrulega margt bókað um slysfar- ir, sjúkdóma, refsingar og viðskipti við íslendinga. Forsetinn ritar for- mála fyrir bókinni „Yves frændi“ ís- landssjómaður, og segir þar að sú ömurlega lýsing sem þar er gefin af frönsku skútulífi sé „raunsönn“. Ég var dálítið í efa um það og spurði hvort hann myndi ekki vera ýktur ömurleikinn. Forsetinn aftók það með öllu. Hann sagði að þær skýrslur sem hann hefði gluggað í sýndu að það sóttu allskonar kvillar á sál og líkama frönsku sjómannanna á Is- landsveiðunum og drykkjuskapur liafi verið mikið vandamál í fiskiflot- anum. Þar sem Forsetinn hafði kynnt sér málið í heimildum, en ég dregið mín- ar skoðanir af ýmsum ytri búnaði Frakkanna, svo sem stærð skipa þeirra, og haldið að þeir hafi hlotið að eiga öllu betra skútulíf en okkar skútumenn, fór ég að ígrunda málið og fann að það mátti renna mörgum stoðum undir þá skoðun sem Forset- inn hafði myndað sér í heimildaleit sinni. Fransmennirnir áttu hér enn verra líf en okkar karlar, og rek ég orsak- irnar lið fyrir lið í þeirri grein sem hér fer á eftir. Það var mikilvægt atriði fyrir mig sem Forsetinn sagði um mannlífið, ég hefði ella skrifað þann þátt með allt öðru móti. Ég var mjög glaður þegar ég hafði sannfærst um að Forsetinn hafði algerlega rétt fyrir sér um raunsannindi mannlífslýsing- anna í bók Yves frænda, og ekki síð- ur gladdi það mig að hann nefnir ekkert annað um gerð sjómannsþátt- ar bókarinnar. Greinilega þótti Forsetanum vænt um sögumanninn Yves gamla og hafði haft af honum góð kynni. Þá fylgist hann með líðan hans í bænum þar sem hann á heima og bæjarstjór- inn sendir Forsetanum fréttir af Yves gamla. Ég nefndi því ekkert um ágalla bókarinnar, sem ég vil kenna höf- undinum en ekki gamla sjómannin- um. Það er eflaust nóg til að angra Forsetann þessa dagana eins og ástandið er í landinu, þótt gestir og gangandi ryðjist ekki inn á hann með einhver leiðindi til að ergja hann. Mig langaði þó oft til að spyrja hvort Forsetinn hefði fundið það á sér, eða leitað sér upplýsinga um það, að hin- ar hlutlægu sjómennskulýsingar bók- arinnar væru algert rugl og þess vegna sleppt að nefna nokkuð um þann þáttinn. Ég var búinn að skemmta mér mikið við lestur þeirra og hefði orðið að sleppa þeim at- hugasemdum mínum öllum ef For- setinn hefði hælt þeim þætti bókar- innar. Ekki hafði blessaður Forsetinn verið á færum og gat ekki af þeirri reynzlu vitað, eins og ég, að það er ekki gerlegt í ofsaveðri að snúa segl- skipi einn hring, hvað þá tíu hringi til að leggja upp að manni, sem fallið hefur fyrir borð. Kannski það hafi vakið Forsetanum einhvern ugg um sjómennskulýsingarnar að skips- pumpan var niðri í lest á annarri skútunni í sögunni. En hvernig svo sem því er varið, þá stóð Forsetinn klár af þessu; nefndi ekkert um þennan hluta og formálinn er honum til mikils sóma, bæði fróðlegur og vel skrifaður. I skútugreinum mínum sæki ég mikið efni í viðtal mitt við Forsetann, þótt þess sé ekki alls staðar getið, og formálinn sýnir náttúrulega að Pompólasöguna hef ég frá Forsetan- um. Við ræddum skútumálin vítt og breytt og komum víða við. Forsetinn fór fram og aftur um Islandssöguna og það leynir sér ekki að hann er þar vel heima, enda þarf hann trúlega oft að grípa til þeirrar þekkingar sinnar. Ekki er nú stætt á að rekja þetta lengra, árangur af viðtalinu kemur hér og þar fram í greinum mínum, sem fyrr segir. Ég skildi við Forseta minn og þjóð- arinnar, þægilega veikur orðinn af Forsetaveikinni í fullvissu þess að óhætt muni að bóka í Sjómannadags- blaðinu að Forsetinn okkar er góð manneskja, skynsöm manneskja og falleg manneskja, og í návist hennar „verða gamlir símastaurar grænir aft- ur“. (Guð verndi páfann). Upp á þessa ályktun hefur Pétur Sigurðsson skrifað fyrir hönd Sjó- mannadagsráðs og væntanlega allrar sjómannastéttarinnar í landinu. Asgeir Jakobsson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.