Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1989, Blaðsíða 70

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1989, Blaðsíða 70
68 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ voru öll hvít og skínandi eins og gler, það voru jöklar, og stærstur þeirra nefndist Vatnajökull. En furðulegt var, að undir öllum þessum stein- gerða kulda drundi í iðrum jarðar hrikalegur eldur sem stundum geyst- ist um í hraunflóðum og eyddi öllu í straumi sínum. Þannig var það um Heklu, þegar hún fékk reiðiköstin ægilegu. Og varð það til þess að fólk hér um slóðir fullyrti áður fyrr, að þar væri eitt af opum helvítis. Enn voru aðrar furður — það hafði hann frá föður sínum: margar lindir með heitu vatni sem sumar voru sjóðandi og gusu háum vatns- og gufustrókum í loft upp. Hásetarnir gátu þvegið þar fötin sín og fengið sér gott steypibað allsnaktir í snjónum, þegar þeir fóru í land til að endurnýja vatnsbirgðir sínar. En það sem Yves þótti furðulegast af öllu, af því að hann var vanur mikl- um gróðri í heimalandi sínu, var að ekki skyldi vera neinn skógur, eftir því sem sagt var, jafnvel ekki tré á stórum svæðum, svo skipti hundruð- um ferkílómetra þar sem hafvindar og brennisteinsmengað vatn hindr- uðu vöxt þeirra. Af þessum viðar- skorti leiddi, að íslendingar urðu að byggja hús sín úr torfuhnausum sem þeir hlóðu hverjum ofan á annan, þökin ennfremur úr timbri og torfi. Samanborið við þetta varð aumasta þorpið á Brctaníuskaga að sælustað. Og á hverju lifði fólkið? Þessari spurningu svaraði faðir hans á þá leið, að það lifði að nokkru leyti á fiskveiðum, en helsti bústofn þeirra væri sauðfé, geitur, svín ogekki hvað sízt litlir, harðgerðir hestar sem væru aðdáanlega fótvissir á hörðum troðn- ingum fjallanna sem tengdu fjarlægar sveitir hverja við aðra. Fyrir utan þetta ræktuðu íslendingar lítið eitt af rúgi, byggi, höfrum og hör sem sjald- an næðu fullum þroska vegna skorts á hlýindum. Kornið væri þá slegið eins og það kom fyrir, til að þurrka það og hafa í skepnufóður yfir vetr- armánuðina. Þegar þú kemur í land, verðurðu hissa að sjá hvernig fólkið klæðist. Síðan lýsti faðir hans fyrir honum búningi landsmanna. Hjá konunum var það síður svartur kjóll, ljósleit silkisvunta og gullbryddað sjal með löngu kögri. Hárið sem venjulegast var mjög ljóst höfðu þær í fléttum sem um var búið með stórum silfur- hringum. Karlmennirnir væru hins vegar með skrítnar húfur úr sauð- skinni, en sá hluti þeirra sem félli yfir eyrun væri búinn vasa, þar sem þeir geyma pípu sína, tóbak og eldfæri. Þegar Yves hlustaði á þetta allt, vantaði ekki mikið á að honum þætti sem hann væri kominn í land villi- manna. Hamingjan sanna! Hve langt hann var í burtu frá Bretaníuskagan- um sínum. Undireins og komið var til Islands, gekk öll áhöfnin í að barka seglin sem átti að setja upp í stað þeirra sem notuð höfðu verið á ferðinni yfir haf- ið. í þessu skyni hafði verið hellt leir- dufti í pott ásamt þorskalýsi og feiti, en úr þeim samsetningi varð til sá lögur sem borinn var á seglin þeim til verndar. Þau stóðust þá betur stöð- uga ásókn vinda, regns og ísþoku. Meðan þetta fór fram lét kapteinn- inn sér nægja að athuga sjóinn, en á lit hans, straumum og öðrum fyrir- bærum gat hvert æft auga séð hvar búast mætti við fiski. Um það hafði hver sínar hugmyndir sem dregnar voru af reynzlu fyrri vertíða. Kap- teinninn, hann Le Maignat, áleit að miðin við suðurströndina væru sér- staklega vænleg. En sá böggull fylgdi skammrifi að þetta voru jafnframt hættulegustu miðin við ísland. Þar var hvergi skjól að finna í óveðrum. Auk þess voru meðfram allri strönd- inni grynningar af framburði ýmissa fljóta, og kölluðu sjómennirnir það „forarkrukkuna“. Þar gaf að líta margt flakið sem bar því vitni, að ef skip rak þar upp í ofviðri, var það glatað fyrir fullt og allt. í tiltölulega hægu veðri lagði „forarkrukkan“ öðru vísi gildru sína, því hún var slóttug, frenjan sú. Þá sáu menn eins- konar gulleita þoku breiðast yfir og hylja strendurnar. Það var tjald úr fíngerðum sandi sem vindur þyrlaði upp. Vei hverju skipi sem lenti í þeirri gildru, þar sem sjórinn hamað- ist í æðislegum ofsa og var fljótlega búinn að ráða örlögum þess, því hún var djöfulleg gildra, „forarkrukkan" sú, banvænn feluleikur hafs, lands og himins. Þegar skipið var komið á vald hennar, sá fjandsamleg náttúran fyrir mönnunum án þess að fara að neinu óðslega, naut krafta sinna, ör- ugg um að eiga síðasta höggið, horfði sigri hrósandi á hlægilegar aðfarir þeirra við að reyna að bjarga sér, gamnaði sér við að lengja dauðastríð skipbrotsmannanna. Þeir skildu ekki þá harmsögu sem þeir lifðu, svo ná- lægt sýndust þeim býlin sem voru mílur í burtu, og hugðu þeir auðvelt þangað að komast, þar sem þeir mundu verða hólpnir. Þessvegna hófu þeir göngu sína öruggir um björgun. Þeir gerðu ekki ráð fyrir mýrunum, síbreytilegum jökulfljót- unum og sandbleytunni. Ef stórfljót- in skoluðu þeim ekki í hafið, ef sand- urinn gleypti þá ekki, þá gat svo bor- ið við, að Islendingar fyndu lík þeirra, færðu þau til kristilegrar greftrunar og settu ómerktan kross á leiðið. Fyrir utan þetta voru miklar hættur sem fylgdu því að vera sífellt að sigla af einu veiðisvæði á annað á bilinu þrjár og upp í tíu mílur frá landi, því dönsku yfirvöldin tóku miskunnarlaust hvert útlent skip sem athafnaði sig í landhelgi, og þorskafl- inn var gerður upptækur. Þessar hættur nefndust óveður. Þau skullu á fyrirvaralaust og rokið var svo óskaplegt að litlar líkur voru til að forða mætti skipinu frá því að reka upp á sker. Þegar best lét urðu menn að bregða skjótt við um leið og sáust minnstu merki um aðvífandi storm og reyna að komast út á rúmsjó, slá undan eða flýja beint áfram án tafar, því hver mfnúta var þung á metun- um, þegar um var að ræða örlög skút- unnar og áhafnarinnar, og þegar loksins var komið út á rúmsjó, lá ekki annað fyrir en að biðja heilagan Jak- ob, verndara sjómanna, að skipið yrði ekki fyrir svo miklum skaða að verða gersamlega háð duttlungum úthafsins. En hvers vegna voru menn þá að fiska erfiðustu mánuði ársins, um há- veturinn? spurði Yves. Því svöruðu „gömlu mennirnir“ þannig: Menn vissu það vel, að í köldum árum fékkst góður afli. Og hvernig hljóð- aði ekki bretónski málshátturinn:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.