Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1989, Page 107

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1989, Page 107
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 105 Þaö er ekki ólundin í þeim fyrir vestan. Hákon heiðrar forvera sinn, Kristján. þeim svip sem það hafði fyrsta ára- tuginn, 1938-49. Skemmtanalíf þjóðarinnar var orðið svo fjölbreytt og almennt, að hátíðahald sjómanna hvarf í skuggann. Pá kom það og til að í sjómannastéttinni fækkaði stór- lega hlutfallslega með þjóðinni, það fækkaði í stéttinni í öfugu hlutfalli við það sem þjóðinni fjölgaði. Kristján J. Jónsson formaður Sjó- mannadagsráðs í alls 16 ár (1967 og 1971-86) sem þekkir Sjómannadags- haldið á ísafirði frá byrjun segir svo um þróunina í 40 ára afmælisgrein- inni í Sjómannadagsblaðinu 1979: „Ég tók, sem ungur maður, þátt í Sjómannadagshaldi í Hnífsdal og þátttakan þar og í sjávarplássum hér vestra held ég að hafi verið allsstaðar mjög mikil. Sjómenn sáu mest um skemmtiatr- iðin sjálfir og svo ýmsir úr landi, bæði konur og karlar, sem áhuga höfðu á því að leggja málefnum sjómanna liðssinni. Hátíðahöldin hafa jafnan verið með líku sniði frá upphafi: Kappróður, reiptog og stakkasund og fyrstu árin voru jafnan haldnar kvöldskemmtanir til ágóða fyrir Sjó- mannadaginn. Hin síðari ár hefur það skemmt- anahald reynst dýrt og ekki skilað ágóða, svo að kvöldskemmtanirnar hafa lagst niður. Það er langt frá því að ég sé ánægður með þátttökuna eins og hún er nú. Ástæðurnar fyrir minnkandi þátttöku eru óskir um breytingu á sjálfu hátíðahaldinu. Menn vita þó ekki fyllilega í hverju hún ætti að vera fólgin. Ég hef reynt að brýna hina ungu sjómenn með því, að þeir yrðu að fara að gera það upp við sig, hvort þeir ætluðu að láta þessi hefðbundnu hátíðahöld falla niður, eða grípa til einhverra ráða til að efla þau. Sjálfum finnst mér það ekki koma til mála að láta Sjómanna- dagshaldið falla niður í jafn rótgrón- um sjómannabæ og ísafirði. Mín krafa og reyndar krafa allra gamalla sjómanna, sem að þessum hátíða- höldum hafa staðið árum saman er því: Meiri reisn yfir Sjómannadegin- um. Dagskrá Sjómannadagsins hélst í sömu skorðum árum saman eftir 1939. fyrsta dagskráin 1938 var þessi: Kl. 11.00 guðsþjónusta; kl. 3.00 skemmtun fyrir fullorðna og þar haldnar ræður Dagsins, önnur af hálfu sjómanna en hin af hálfu út- gerðarmanna; þá var kórsöngur, síð- an kvikmyndasýning og dansleikir um kvöldið. Aðsókn var ágæt. Næsta ár bættist kappróður sjómanna í dag- skrá Sjómannadagsins. Kappbeiting var vinsæl keppnisgrein árum saman, en lagðist af 1981. Sjómannadagur- inn stóð snemma fyrir dansleikja- haldi á laugardagskvöldið jafnt sem Sjómannadagskvöldið, en önnur dagskráratriði hafa ekki verið á laug- ardeginum fyrr en eftir að hópsigling var tekin upp sem dagskráratriði. Hún var fyrst snemma morguns á Sjómannadaginn, og síðan gengið til kirkju, en árið 1980 var hópsigling eða sigling með börn flutt til laugar- dagsmorgunsins og Sjómannadagur- inn hófst þá á guðsþjónustu. ísfirð- ingar tóku fyrstir manna að heiðra aldraða sjómenn, eða árið 1946, átta árum áður en aldraðir sjómenn voru heiðraðir í Reykjavík. Hefur það síð- an verið fastur liður í dagskrá Sjó- mannadagsins á ísafirði og þá oftast tveir menn hverju sinni. A 50 ára afmælinu í fyrra var tekinn upp sá háttur að heiðra sjómannskonur. Margt hefur verið reynt til að halda fullri reisn í Sjómannadags- haldinu, en gengið erfiðlega, eins og víðast hvar. Nokkur brögð eru orðin að því á ísafirði að skipshafnir togar- anna geri sér dagamun sjálfar. Sömu menn eru að mestu leyti á skipunum ár eftir ár og þær halda mjög hópinn; skemmta sér og fara í ferðalög sam- an. Áður en Sjómannadagurinn var lögskipaður frídagur sjómanna, hef- ur það náttúrulega tíðum verið að skip hafa ekki verið í höfn. Reynt var að fá skemmtikrafta að sunnan til að lífga upp á Daginn, en það reyndist mönnum ofviða fyrir kostnaðar sakir og hafa heimamenn því reynt að ann- ast skemmtiatriðin sjálfir. En það er orðið þannig um íslendinga almennt, að þeir eru svo genverðugir í skemmtanalífinu að þeir heimta at- vinnumenn til að skemmta sér, og þeir kunna að verðleggja sig. Margs- konar sprell hefur verið reynt, svo sem koddaslagur, pokahlaup og boltaleikir, en hvergi hefur enn fund- ist ráð til að gefa Sjómannadagshald- inu sömu reisn og fyrsta áratuginn. Það er ekki um nema tvennt að velja: Að yfirganga aðra í sprellinu — en á fámennari stöðum er sú leið of dýr — eða sætta sig einfaldlega við að hátíð- arsamkoma Sjómannadagsins sé fá- menn en virðuleg samkoma.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.