Sjómannadagsblaðið - 01.06.1989, Síða 134
132
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
MINNISMERKI ÓÞEKKTA SJÓMANNSINS
Nýi varðinn sunnan við Fossvogskapelluna.
*
tilefni 50 ára afmælis Sjó-
mannadagsins í Reykjavík og
Hafnarfirði var minnismerki
Óþekkta sjómannsins endurbyggt og
flutt um set í Fossvogskirkjugarði.
Frumteikningu Ríkharðs Jónsson-
ar var fylgt í einu og öllu og skreyt-
ingin af gamla vitanum notuð á hinn
nýja.
Halldór Guðmundsson arkitekt
gerði teikningar af vitanum og skipu-
lagi að umhverfi hans, en steinsmiðja
Sigurðar Helgasonar sá um fram-
kvæmd verksins.
Kirkjugarðsyfirvöld í Fossvogi
völdu vitanum stað við vesturhlið
kirkjunnar og sáu um jarðvegsfram-
kvæmdir og raflögn.
Hann var vígður að morgni Sjó-
mannadagsins 1988 af sr. Ólafi
Skúlasyni vígslubiskupi, sem flutti
bæn og helgunarorð. Blandaður kór
undir stjórn Guðna Þ. Guðmunds-
sonar söng „Þakkargjörð“ eftir Sig-
fús Halldórsson, tónskáld. Starfs-
menn Landhelgisgæzlunnar og skip-
verjar af danska varðskipinu
Hvidebjörn stóðu heiðursvörð.
Fyrsti blómsveigurinn sem lagður
var að minnismerkinu var frá Slysa-
varnafélagi Islands.
Þrátt fyrir leiðinlegt veður var
nokkur mannfjöldi viðstaddur at-
höfn þessa, þar á meðal áhafnar-
menn erlendu seglskipanna sem
komu í höfn í Reykjavík, sérstaklega
í tilefni 50 ára afmælisdags Sjó-
mannadagsins.
A leiði Óþekkta sjómannsins var
settur legsteinn, stór brimsorfinn fjör-
usteinn með áletruninni: „Hér hvflir
óþekkti sjómaðurinn frá 1933“.
Eftirtaldir aðilar styrktu Sjómanna-
daginn við gerð hins nýja minnisvarða:
H.f. Eimskipafélag Islands
Farmanna- og fiskimannasamband
Islands
Fiskveiðisjóður íslands
Gúmmíbátaþjónustan
Landsbanki íslands
Nesskip h.f.
Reykjavíkurborg
Reykjavíkurhöfn
Sjómannasamband íslands
Sparisjóður vélstjóra
Sölusamband Hraðfrystihúsanna
Sölusamband ísl. fiskframleiðenda
Útvegsbanki íslands h.f.
Víðir Finnbogason h.f.
Ögurvík h.f.
Öllum þessum aðilum eru færðar
bestu þakkir fyrir stuðning sinn.
Varðinn, sem reistur var 1938, áður en
hann fór að skemmast, og stolið var af
honum Ijóskerinu, og varðinn þá einnig
skemmdur um leið.
Helgistund við gamla varðann á Sjó-
mannadag.
Krossinn, sem settur var þegar óþekkta
líkið fannst, alllöngu eftir að Skúli fógeti
fórst 10. apríl 1933, en líkið var talið vera
af skipverja af Skúla fógeta og krossinn
frá þeim tíma og af því er aðeins ritað eitt
k í áletruninni í orðinu „óþekt“, Menn
rituðu þá ekki tvöfaldan samhljóða.