Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1970, Side 16

Eimreiðin - 01.05.1970, Side 16
Þjófilagaspjal! Viðtal við Helgu Jóhannsdóttur Helga Jóhannsdóttir íslenzk þjóðlög virðast eiga vaxandi gengi og vinsældum að fagna og þau eru orðin vel met- in, bæði rneðal tónlistarfólks og almennings. Þetta hefur mikið breytzt frá þeim dögum, er séra Bjarni Þorsteinsson vann að þjóðlagasöfnun sinni, en þá voru þjóðlögin ekki meira metin en svo, að honum tókst ekki að fá til þess stuðning hér á landi að gefa þjóðlagasafn sitt út. Stuðn- ing til þess hlaut hann ekki fyrr en Carlsbergssjóðurinn í Kaup- mannahöfn hljóp undir bagga og kostaði útgáfuna. í því tilfelli varð danski bjórinn íslending- um tvímælalaust gagnlegur. En afrek séra Bjarna Þorsteins- sonar er nú fyrir löngu viður- kennt, og allir vita, að hann hefur bjargað frá glötun og gleymsku miklum fjölda þjóð- laga. Eftir hans daga hafa þó margir lagt hönd á plóginn við söfnun þjóðlaga, enda virðast þjóðlögin furðu lífseig meðal al- mennings í landinu. Með hverju árinu sem líður fækkar þeim þó, sem kveðið geta rímur og kunna gömul lög. Þess vegna eru þeir, senr vinna að þjóðlagasöfnun sí- fellt í kapphlaupi við tímann og reyna að bjarga svo miklu sem bjargað verður, áður en sú kyn- slóð, senr enn getur sungið þessi lög, hverfur af sjónarsviðinu. Meðal þeirra sem nú vinna að

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.