Eimreiðin - 01.05.1970, Blaðsíða 79
GRETTIR ÁSMUNDSSON
Þorbjörn: Ekki ræðum við mál
þessi við húskarla. (Snýr sér að
Illuga.) Mikill skaði er það
með þig svo röskvan mann
sem þú ert, að þig hefir hent
sú óvizka að ráðast til fylgilags
með útilegðarmanni þeim og
illvirkja sem hér er nú fall-
inn, og verða fyrir það rétt-
dræpur og ógildur.
lllugi: Svo fremi veiztu það, sem
úti er Alþingi í sumar, hverjir
útlægir verða eða falli ógildir
fyrir þau verk, er hér hafa ver-
ið unnin.
Þorbjörn: Það ætla ég, að flest-
um þar muni þykja vel hafa
til tekizt, er svo stórsekur
skógarmaður, sem Grettir var,
hefir loks verið drepinn.
Illugi: Eigi muntu né kerling
hin arma fóstra þín dæma þau
mál. En galdrar ykkar og
forneskja hafa drepið Gretti,
þó að þið bæruð járn á hann
að dauða kominn, og muntu
ósæmd og ábyrgð af hljóta.
Þorbjörn: Rösklega segir þú, en
eigi mun svo verða. Vil ég nú
sýna, að mér þykir mannskaði
að þér og gefa þér líf, ef þú
vilt vinna mér trúnaðareið að
hefna í engu á þeim, er í þess-
ari aðför hafa verið.
Illugi: Það þætti mér umtalsmál,
ef þið hefðuð unnið á Gretti
með drengskap og harðfylgi,
en nú þykir mér þess engin
von, að ég muni það til lífs
143
mér vinna að sættast við slík-
an ódreng, sem þú ert. Skal
enginn vera þér óþarfari en
ég, ef ég lifi, því seint mun mér
fyrnast hvernig þér unnuð á
Gretti dauðvona. Vil ég miklu
fremur deyja með honum en
lifa við slíka smán.
Þorbjörn: Hvað lízt ykkur félag-
ar, hvort fært er að gefa Illuga
lausan með þvílíkum afarkost-
um sem hann heitir oss?
Kárr húskarl: Ráða skaltu öllum
aðgerðum í þessu máli. Alun-
um við ekki á okkur þann
vanda taka né neitt það, er hér
hefir til tíðinda orðið í ferð
þessari.
Þorbjörn: Ekki kann ég að eiga
mann þennan yfir höfði mér,
er engum tryggðum vill lofa,
en heitir oss hinum mestu af-
arkostum, og leiðum hann út
í eyna til höggs.
Illugi: (Hlær við.) Nú réðuð þið
það af sem mér var nær skapi.
Veit ég að aldrei deyr góður
orðstír, og þótt ég hafi lifað
skamma ævi, þá hygg ég, að
sæmd mín megi því lengur
endast. En það ætla ég, að fyr-
ir illræðisverk þau, er hér eru
unnin með tilstuðlan fjöl-
kynngi og fordæðuskapar,
verðir þú dæmdur ólífismaður
á Alþingi, og þinn níðings-
skapur uppi meðan landið
verður byggt. (Þeir leiða 111-
uga út. Það dimmir á svið-