Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1970, Side 27

Eimreiðin - 01.05.1970, Side 27
ÍSLENZKUR SMÁRI 91 veltast í áflogum á lækjarbakk- anum. Brátt skyldi lækurinn hverfa og lífið í þorpinu fá menningar- og borgarsvip. Moldvarpan er á heimleið og röltir götuna meðfram læknum. Sumarið hafði verið óvenju rigningarsamt og lækurinn í vexti. Vatnið nær upp að göngu- pöllunum og flæðir yfir uppi- stöður barnanna. Þar liggja bát- ar við bryggjur og nú sigla drengir. Þeir standa í hópum við pallana, herma eftir mótor- hljóði skipanna og draga bátana milli hafna. Moldvarpan stanz- ar, horfir á leikinn og er ungur. — Hei, vill moldvarpan vera með? hrópar einn drengjanna og h'tur stríðnislega til hans. Þá kippist hann við og röltir af stað. Hann brennur af heift og þrammar götuna. Þó má hann vera hreykinn af viðurnefninu. Hann reynir að einangra þá hugsun og gæla við hana. Hver grefur beinni og fallegri skurði? . . . . Hver var fljótari og sam- vizkusamari við verk sín? .... Hver var snjallari í viðskiptum við stórgrýtið? .... Hver . . . . ? En illgresið vex og moldvarpan þrammar og þrammar götuna með læknum og heinr að fjöl- býlishúsinu. Lyftan er nýtízkuleg, en ó- hrein. Þar eru krotuð nöfn íbúa hússins og sunrum fylgja klúrar skýringamyndir. Loftið er rakt og þungt. Lyftan ískrar og stanz- ar með rykk. Hann mætir konunni í dyrun- um. — Þú ert konrinn, segir hún. Þetta er ávarp dagsins á því heimili. — Já. Hann fer úr stígvélun- um frammi við dyrnar og mold- in hrynur á gólfið. — Gaztu ekki verkað þig upp úti? röddin er blæbrigðalaus. Hún horfir á lrann og fer síðan inn. — Maturinn er til, kallar hún að innan. — Nú, segir hann og kraflar upp mestu moldina og ber með sér inn í vaskinn, svo réttir hann fram launaumlsagið. Hún tekur við því og telur. Hann lítur til hennar á ská. — Hér vantar tvö hundruð krónur. Nú hefur röddin á- herzlu. — Maður þarf að hafa fyrir sígarettum, segir lrann og lítur af henni yfir borðið. — Ekki reyki ég. - Nei. — Leyfir kaupið þitt munað? — Ég vinn, tautar hann og gýtur augunum, ég hlýt að mega lifa. — Fleiri en þú vinna, segir hún og röddin er aftur flöt. — Ég vinn helgidagsvinnu á morgun. Hann er uppörvandi

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.