Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1970, Page 30

Eimreiðin - 01.05.1970, Page 30
94 EIMREIÐIN lega kaup fyrir að sofa. Mold- varpan brosir þreytulega. Spaðinn rekst í stein. Mold- varpan lrleypir brúnum, snýr spaðanum og lítur á eggina, sem hefur marist. Síðan reynir hann að grafa frá steininum án þess að breikka skurðinn. Hér er þó ekki um margt að velja. Steinn- inn er nokkru stærri en nemur breidd skurðarins. Vonandi er hann flatur, svo að hægt sé að koma honum á rönd og þá þarf ekki að: breikka skurðinn. Hlið- arholur eru ekki áberandi, ef brúnin er jöfn og bein. Þegar rýmkast um steininn, beygir moldvarpan sig og tekur á honum báðum höndum. Steinninn hreyfist ekki. Kannski var þetta klöpp. Fjandans ólán, þá yrði að sprengja. Moldvörp- una hryllir við, bítur á vör og hugsar. Aftur borar hann spað- anum undir brúnina og beitir afli. Steinninn hreyfist. — Já, vissi ég ekki, tautar moldvarpan og bros læðist yfir togið andlitið. — Þú kemur. . . . Þér skal ekki takast að eyðileggja skurðinn minn . . . Vertu viss. . . . Gamla moldvarpan kann á ykkur lagið. Sjálfur gat hann ávarpað sig moldvörpu án þess að finna til heiftar. Nú grefur hann holu undir annan enda steinsins og inn að miðju, síðan ofan af hinum endanum. Þá sækir hann járnkarl. — Þarna karlinn, hvað get- urðu nú? og moldvarpan rekur járnkarlinn undir miðju steins- ins. — Þegar þú ert kominn á rönd, skaltu svei mér vara Jrig. Steinninn vaggar og hallast. — Þú heldur kannski að þyngd- in dugi þér, en þá skaltu vita, að þrátt fyrir elli og hrörnun, hef ég sigrað breiðari bóga en þig. — Satt er það, að sennilega get ég ekki lyft þér upp úr þess- um þrönga skurði, en varaðu þig, ég á ráð. . . . Viltu kannski vita þau? . . . Segum, að ég geri það, þá geturðu gert þitt bezta og við stöndum jafnt að vígi. Þú ert tröll, en ég er vitur. Segðu bara, að tröllin séu óheimsk, en þá segi ég: Væru tröllin bæði sterk og vitur, græfi ég ekki fyrir síma. En nú segi ég þér, hvað ég ætla að gera og hlustaðu vel. Þegar þú ert kominn á hlið- ina, karlinn minn, þá gref ég skurðinn áfram og læt botninn smátt og smátt hækka þar til liann nær upp á yfirborð jarðar. . . . Hvernig lízt þér á? Hvor sigrar? . . . Moldvarpan hlær lágt og hossar steininum. Klukkan er tíu. Höfðinginn og frúin sitja við eldhúsborðið, 02; drekka mor^unkaffið. — Er þessi vesalingur að grafa fyrir símanum? spyr frúin og h'tur út um gluggann, þar sem

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.