Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1970, Page 51

Eimreiðin - 01.05.1970, Page 51
ALDARMINNING 115 stórveldi; en æskan leggur veröld- ina undir sig með trú sinni, ekki mannfjölda, og hver veit nema þessir menn vinni heiminn? Yf- ir hverju nýfæddu barni svífur óljós tilfinning þess, að það eigi mikla og dularfulla framtíð fyrir höndum; þeirrar tilfinningar verða menn hér varir í auknum mæli. Óneitanlega hefur nokkuð fyrir oss borið: Við leggjum af stað til þess að koma að sögu- legri gröf — og rekum okkur þess í stað á þjóðarvöggu." A aldarafmæli Martins And- ersen Nexö hefur hans verið minnst á margvíslegan og virðu- legan hátt. Forlaget Tiden gaf út tveggja binda verk til minning- ar um hann, Gyldendals forlag hefur nýlega gefið Ditte Menn- eskebarn út í 10. útgáfu. Hefur sú skáldsaga komið út í 67 ]oús- und eintökum á dönsku, en auk þess verið þýdd á fjölmörg önn- ur tungumál, eins og margar aðr- ar bækur skáldsins. í danskri bókmenntasögu er sagt frá því, að undanteknu ævintýraskáld- inu H. C. Andersen hafi ekkert danskt skáld verið. þýtt á fleiri tungumál en Andersen Nexö. Martin Andersen Nexö lézt í Dresden 1. júní 1954, tæplega 85 ára að aldri, en var jarðsettur í Kaupmannahöfn. Á seinustu síðum endurminn- inga sinna hugleiðir Nexö verk sín sem skálds. — Það, sem ég er, segir hann, — hef ég ekki orðið vegna ein- hverra sérstakra hæfileika, held- ur einmitt fyrir lífsreynslu mína markaða skorti og baráttu, gleði og vonbrigðum, sem ég hef mátt deila við aðra menn. Mikilvægan lilut að þessu máli átti heilsu- leysi mitt — og einstaklingarnir, sem gagntóku huga minn rétt- sýni sinni eins og bóndinn Hans Dahl. Og aðrir kölluðu mig sunnudagsbarn til sigurs fætt, einmitt þegar dapurlegast horfði fyrir mér. Áhrif sumra manna eru þess eðlis, að þau móta oss ævilangt. Iængst mun þó endast varmi sannmannlegs hjartaþels. Og í því efni minnist ég þakkláts hugar — næst móður minni — hinnar óvenjulegu ágætiskonu frú Molbech. Sjálfum finnst mér þessi leið, þótt hlykkjótt hafi verið, stefna frarn til þess, sem mest er um vert allra hluta: friðsamlegs, heiðarlega starfandi mannfélags. Ég tel mig hafa hlotið margar fasrar osr husistæðar sannanir o o o þess, að þetta sé einmitt rétta leiðin. Á skáldinu hvílir þung ábyrgð, gagnvart mannkyninu, — þyngri ábyrgð en lögð sé á nokkurn annan einstakling.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.